Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Úrslit arrow Úrslit - Grindavíkurþríþraut 2007
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Úrslit - Grindavíkurþríþraut 2007 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
mánudagur, 04 júní 2007
Þó blásið hafi nokkuð á keppendur þá létu 20 hetjur það ekki á sig fá og tóku þátt í þessari fyrstu Grindavíkurþríþraut.  Tvö lið mættu til leiks, ásamt 15 einstaklingskeppendum.  Það var gaman að sjá mörg ný andlit í hópi keppenda, og vonum við að fá að sjá þau aftur sem fyrst.  Í því sambandi viljum við benda fólki á keppnisdagskránna okkar en hana er að finna hér á heimasíðunni.  Einnig var hann Albert svo vinsamlegur að taka myndir af keppninnir og má sjá þær hér.

Það voru óvenjumargir flokkar hjá okkur í þessari keppni, bæði var keppt í götuhjólreiðum og fjallahjólum, og svo liðakeppni.  Í fjallahjólaflokknum var einnig keppt í flokki 18ára og yngri, en þar var greinilega upprennandi afreksmaður í þríþraut, Gunnar Þorsteinsson 13 ára, sem lauk keppni með glæsibrag á tímanum 2:03:27.

Það voru svo gamalreynd andlit sem urðu hlutskörpust í flokki götuhjóla karla, en þar kom Torben Gregersen sterkur inn í fyrsta sætið á tímanum einni klukkustund 17 mínútur og 15 sek.  Jens Kristjánsson kom annar í mark á 1:27:39 og Rémi Spiliaert varð þriðji á tímanum 1:30:38.

Í kvennaflokki götuhjóla börðust þær Helga Árnadóttir og Stefanie Gregersen um fyrsta og annað sætið.  Keppnin var nokkuð jöfn framanaf, en Helga bætti forskotið jafnt og þétt og kom fyrst í mark á 1 klukkustund 41 mínútu og 20sek, en Steffi kláraði á 1:52:32.

Í liðakeppninni sigraði Grindavík Group nokkuð örugglega, á einni klukkustund 21mínútu og 42 sek, en Bluelings kepptu fáliðaðir þar sem hlauparinn þeirra heltist úr liðinu skömmu fyrir keppni.

Í fjallahjólaflokki kepptu þrír karlar og ein kona.  Fyrstur karla var Almantas Vizgirda á 1:36:32, en Guðbjörg Björnsdóttir varð fyrst og ein kvenna á tímanum 1:55:56.

Einungis einn keppandi villtist það mikið af leið að ekki tókst að skrá lokatíma hans, en það er greininlegt að hlaupaleiðin þarfnast betri merkingar og mun mótstjórn taka það til greina á næsta ári.

Heildarúrslit  má svo sjá hér að neðan.

 
NafnFlokkurSundT1HjolT2HlaupLokatími
Torben GregersenGötuhjól-kk00:11:4400:01:1600:39:1900:00:1700:24:4001:17:15
Jens Viktor KristjánssonGötuhjól-kk00:14:3700:02:4000:41:5100:01:3500:26:5601:27:39
Rémi SpilliaertGötuhjól-kk00:12:5400:01:0900:45:5500:00:5100:29:4901:30:38
Hartmann BragasonGötuhjól-kk00:14:1800:02:5200:46:1600:01:2700:28:3801:33:31
Trausti ValdimarssonGötuhjól-kk00:14:2100:02:1400:44:5700:01:0500:34:2501:37:02
Bjarni Már SvavarssonGötuhjól-kk00:16:1200:02:3200:50:3700:00:5200:37:2401:47:37
Sigurbjörn DagbjartssonGötuhjól-kk00:18:4100:03:0700:52:0300:01:3700:36:2301:51:51
Magnús TeitssonGötuhjól-kk00:18:2900:03:2800:58:4800:00:34**

Helga ÁrnadóttirGötuhjól-kvk00:17:0100:02:0000:50:3300:01:4100:30:0501:41:20
Stefanie GregersenGötuhjól-kvk00:16:5700:02:4400:53:0900:01:0900:38:3301:52:32

Almantas VizgirdaFjallahjól-kk00:11:4100:01:3700:51:1900:01:5100:30:0301:36:32
Ólafur H.ValssonFjallahjól-kk00:17:0400:02:2500:51:4000:00:4600:28:5001:40:45
Oddur Valur ÞórarinssonFjallahjól-kk00:18:1400:03:4000:57:5100:00:5800:38:3901:59:22
Gunnar ÞorsteinssonFjallahjól-kk-Ungl00:18:2900:03:5101:07:4900:00:2800:32:5002:03:27

Guðbjörg BjörnsdóttirFjallahjól-kvk00:16:5700:03:1001:02:2700:01:0500:32:1701:55:56

Grindavík GroupLið00:13:3200:00:5900:41:4900:00:0500:25:1701:21:42
BluelingsLið00:13:5800:01:2900:49:0700:00:0300:35:1201:39:49
* Ekki tókst að fá lokatíma, en keppandi lauk keppni
Síðast uppfært ( mánudagur, 04 júní 2007 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!