Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Úrslit arrow Grindavíkurþríþraut 2007
sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Grindavíkurþríþraut 2007 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
sunnudagur, 20 maí 2007
Þríþrautarfélagið ásamt Bláa lóninu og Grindavíkurbæ kynna:

Grindavíkurþríþraut 2007

Grindavík - Bláa lónið

Sunnudaginn 3 júní  Kl. 10:00
Sund: 800m - Í sundlaug Grindavíkur
Hjól: 23km - Í Grindavík
Hlaup: 6 km frá Grindavík til Bláa Lónsins

Afhending rásnúmera og ræsing
Afhending rásnúmera er við sundlaug Grindavíkur 3. júní 2007 frá kl. 8:00 til 9:30.

Skráning
Hægt verður að skrá sig á keppnisdegi í sundlaug Grindavíkur en forskráning er æskileg.
Skráið ykkur hér:
Einstaklingskeppni
Liðakeppni

Keppnisgjald
Keppnisgjald er 1000 kr fyrir hvern þátttakanda og 1500kr. fyrir hverja sveit. Innifallinn er aðgangur í Bláa Lónið fyrir alla keppendur eftir keppnina.

Hérna sést kort af leiðinni fyrir hjól og hlaup.  Hjólaðir verða 4 hringir (rauð leið) og svo hlaupið í bláa lónið (blá leið).  Veljið myndina til að sjá hana í hærri upplausn.  Athugið að spottinn frá skiptisvæðinu að Mánagötu er einungis hjólaður í fyrsta og síðasta hring (þ.e. til að komast frá og að skiptisvæðinu).


Ræsing
Ræst verður kl. 10:00 í sundlauginni. Í sundlauginni eru 5 brautir og verða ekki fleiri en 5 menn á braut. Ef keppendur eru fleiri en 25 verður ræst í lotum á 20 mínútna fresti.

Drykkjarstöð
Ein drykkjarstöð verður við markið í Bláa Lóninu.

Flokkar
Keppt verður í eftirfarandi flokkum. Hver flokkur skiptist í karla- og kvennaflokka.

Racer flokkur (reiðhjól með 28” gjarðir)

Fjallahjól (reiðhjól með 26”gjarðir og minni):
    Unglingaflokkur: 18 ára og yngri
    Fullorðnir: 19 ára og eldri

Sveitakeppni
Einnig verður boðið upp á sveitakeppni þar sem hver sveit má vera blönduð: karlar og konur, racer og/eða fjallahjól. 3 einstaklingar skipta með sér greinunum þremur. Öll lið eru leyfileg, allur aldur og bæði kyn, fjölskyldur, fyrirtæki; racer eða fjallahjól, o.s.frv.
Einungis er einn flokkur í sveitakeppni – allar sveitir keppa í sama flokki.

Verðlaun
Verðlaunapeningar verða veittir fyrir 1., 2. og 3. sæti í hverjum flokki. Sérverðlaun í boði Bláa Lónsins eru fyrir 1. sæti í öllum flokkum.

Flutningur reiðhjóla til Bláa Lónsins eftir keppnina
Reiðhjól og annað sem skilið verður eftir á skiptisvæðinu við sundlaugina í Grindavík verður flutt með sendibíl til Bláa Lónsins kl. 11:30

Hjólagæsla
Ströng hjólagæsla verður á skiptisvæðinu við sundlaugina á milli kl. 9:30 og 11:30.

Ýmislegt
Keppnin er opin öllum. Hjálmaskylda er á hjólreiðahluta keppninnar. Bæði hjóla- og hlaupaleið er opin fyrir almennri umferð, keppendur verða því að fara eftir umferðareglum, nema þar sem lögregla gefur augljós merki um að annað sé leyfilegt.

Nánari upplýsingar má fá í síma 8408652; 8946365; 6610606
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 30 maí 2007 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!