Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Jack Arvid á Íslandi helgina 4. - 6. Maí 2007 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
föstudagur, 27 apríl 2007

Á vegum Hjólreiðanefndar ÍSÍ verður efnt til sérstakrar dagskrár um hjólreiðar helgina 4. - 6. Maí .

Danski hjólreiðamaðurinn Jack Arvid Olsen mun heimsækja okkur og vera með þrjú námskeið og fyrirlestur um æfingar og keppnir.
Jack mun í umfjöllun sinni leggja út frá svo kallaðri Pafei-æfingatækni sem mjög er að ryðja sér til rúms innan hjólreiðaíþróttarinnar.
Föstudag, laugardag og sunnudag kl. 14:00 til 15:30 verða hópæfingar í leikfimisal þar sem Jack mun leiða menn í gegnum bæði líkamlegar og sálfræðilegar æfingar.
Laugardaginn 5. maí kl. 18:00 til 20:00 heldur Jack síðan fyrirlestur um efnið í víðara samhengi.
Pafei-tæknin gengur í stórum dráttum út á þá hugmynd að "þú (sem hjólreiðamaður/íþróttamaður) ert ekki sterkari en veikasti hlekkurinn". "Hlekkirnir" eru m.a. þol, tækni, hrástyrkur, sprengikraftur, "timing", "interval", jafnvægi og "rytmi".
Fyrirlesturinn verður opinn öllum (hóflegur aðgangseyrir), en skráð verður í æfingatímana þar sem fjöldi þáttakenda er takmarkaður. Áhugasamir geta skráð sig hjá undirrituðum á e-mail: jenskristjans(at)simnet.is
Fyrirlestur og æfingar verða á
dönsku .
Góðir félaga, nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri og takið frá helgina 4. - 6. maí.
Fljótlega verður auglýst nánar um endanlegar tímasetningar og staðsetningu atburðanna.

 
< Fyrri   Næsti >
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?

Skoðanakönnun
Hver er uppáhalds vegalengdin þín í þríþraut?
 
Hver er hér
Það er(u) 8 gestir hér.
Að utan
 
Top! Top!