|
Skrifað af Sigurður V. Smárason
|
|
fimmtudagur, 29 mars 2007 |
Nú fara í hönd nokkrar breytingar á æfingum ÞríR.
Fyrst er að nefna að mánudagssundæfingarnar mun framvegis vera 2 tímar og byrja þá kl 19:30. Eins hefur Mads þjálfari sett upp heimasíðu þar sem boðið er upp á einkasundkennslu. Endilega athugið hvað þar er boðið upp á.
Svo eru spinning æfingarnar á sunnudögum að klárast, en núna á sunnudaginn verður síðasta spinningæfing vetursins. Þær munu svo hefjast aftur í haust. Eftir páska koma svo útiæfingar í stað spinningæfingana, bæði á fimmtudögum og sunnudögum. Nánari útfærsla verður auglýst síðar.
|