Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Keppnissögur arrow Ásgeir: SOMA hálf-járnkallinn
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Ásgeir: SOMA hálf-járnkallinn PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
miðvikudagur, 08 nóvember 2006

Viðmiðið mitt í þessarri keppni var :

Sund : 35 mín.

Skiptingar : 2,5 mín. x 2

Hjól : 3 tímar

Hlaup : 1:45

Samtals : 5:25

Markmiðið var að reyna að komast þetta undir 5:15 en draumurinn var samt að komast þetta á 4:59:59. Ég vissi bara ekki hvernig ég ætti að fara að því. Ég var búinn að vera að reikna þetta fram og til baka en mér fannst allar niðurstöður sem gáfu mér þennan tíma vera óraunhæfar. Ég var kominn með hjólið niður í 2:45, hlaupið niður í 1:40 og neðar komst ég bara engan veginn. Samt, Siggi ætlaði að reyna við 5 tímana og ég ætlaði að vera á undan honum og það var þá ekkert um neitt að ræða annað en að vera undir 5. Með það var farið af stað.

Keppnismorguninn var mætt á svæðið um fimm- hálfsex og það var ótrúlega skrýtin spenna í manni. Maður var ekki hræddur um að maður gæti ekki klárað, heldur var þetta allt svo nýtt fyrir manni. Ég hafði aldrei synt í blautbúningi, aldrei synt í opnu vatni, aldrei keppt í svona löngu sundi og aldrei hjólað svona langt í keppni. Keppnisreglurnar voru flóknari en í venjulegu götuhlaupi og ég var hræddur við að gera mistök sem yrðu til þess að ég félli úr keppni. 

 

Sundið (37:14):

Ræst var í hollum og var ég í sjötta holli en Siggi í fjórða sem var startað sex mínútum á undan mér.  Mér fannst gott að hafa Sigga á undan mér. Bæði hjólabrautin og hlaupabrautin voru þannig að á köflum leiðanna mættust keppendur og ég vonaðist til að geta séð Sigga og reiknað út hversu langt væri í hann. Planið var að vera fljótari í sundinu, tapa ekki of miklum tíma á hann á hjólinu (ca. 6 mín.) og ná þeim mun upp í hlaupinu. 

Ég var fremstur á ráslínu í mínu holli þar sem voru ca. 200 manns. 

Sundið gekk brösótt því ég var alltaf að villast af leið og átti erfitt með að halda stefnu. Vatnið var svo gruggugt að maður sá ekki hendurnar á sér þannig að maður sá ekki næsta mann nema að lyfta hausnum upp úr vatninu en það hægði verulega á manni. Ég lenti í einni slæmri villu þar sem ég tók stefnuna á vitlausa bauju og áttaði mig ekki fyrr en ég var komin langleiðina að henni. Ef ég hefði haldið áfram hefði ég stytt mér leið og skorið horn af sundbrautinni þannig að ég varð að synda til baka til að komast fyrir þá bauju sem ég átti að fara hjá.

Sundið sjálft var samt bara ljúft. Maður var ekki þreyttur. Þetta var eins og löng, hæg hlaupaæfing þar sem maður er í góðum gír.

Þegar maður kom að bakkanum var manni kippt upp úr vatninu upp í hnéháar tröppur sem lágu upp á bakkann. Þar hitti ég ekki á fyrsta þrepið og reif hálfa nöglina á stóru tá vinstra megin lausa. 

Það gekk vel að fara úr efri partinum af blautbúningnum. Ég var kominn úr honum þegar ég kom upp á pallinn þar sem stripparar tóku við og hjálpuðu mér úr neðri helmingnum. Svo var hlaupið inn á skiptisvæðið ca. 200 metra að hjólinu. 

 

Hjólið (2:36):

Þegar komið var að hjóli byrjaði maður á að losa sig við blautbúninginn, hettuna og gleraugun og setja allt á sig sem tilheyrði hjólinu. Síðan var stoppað og hugsað. Fannst þetta ganga grunsamlega vel. Gleymdist eitthvað ? Síðan var hlaupið af stað með hjólið. Það voru ca. 50 metrar í viðbót þangað sem mátti byrja að hjóla.

Ég hélt aftur af mér á hjólinu til að byrja með en var samt á 35 km. hraða. Púlsinn var í góðum gír. Síðan var hjólað þétt það sem eftir var keppninnar. Ég var hraðastur í öðrum hring af þremur. Ég var með góðan brúsa á hjólinu með rörum í svo ég gat drukkið þegar ég vildi án þess að hægja á mér og það var auðvelt að bæta á brúsann og grípa gel. 

Ég mætti Sigga þegar ég var búinn með 2/3 af fyrsta hring. Munurinn var 7 mínútur. Ég mætti honum aftur í endanum á öðrum hring og þá var munurinn 9 mínútur. Í þriðja sinn sem ég mætti honum (í þriðja hring) var munurinn kominn ofaní 3-5 mínútur og skildi ég ekki hvað var að gerast. Ég bætti ósjálfrátt í hraðann hjá mér við að sjá þarna betri möguleika á því að ná Sigga og kláraði svo hringinn inn á skiptisvæði þar sem aftur þurfti að hlaupa með hjólið ca. 70 metra.


Hlaupið (1:45):

Nú losaði maður sig við hjóladót og fór í hlaupaskó en mér var illt í iljunum eftir hjólaskóna og það blæddi stöðugt úr tánöglinni. Ég skokkaði út af skiptisvæðinu, ca. 100 metra og fyrsti maður sem ég sá þar var Sigurður vinur minn. Við skokkuðum aðeins saman. Mér fannst ég vera mjög ferskur og bætti við ferðina fram að fyrstu drykkjarstöð (eftir rúma mílu). Þar var drukkið og haldið áfram en mun hægar. Átti erfitt með að halda uppi hraða. Ég labbaði í gegnum allar drykkjarstöðvar og náði mér ekki á strik. Ég ákvað því að taka það rólega á fyrri hring og athuga hvort ég yrði ferskari á þeim seinni. Siggi náði mér aftur eftir 7 kílómetra og nú fór hann fram úr mér. Ég missti hann 50 metra fram fyrir mig og þá voru svona 9 kílómetrar búnir af hlaupinu. Þetta var á drykkjarstöð þar sem ég fékk mér kók og hresstist alveg ótrúlega við það. Ég náði Sigga á 10. kílómeter og mér fannst ég bæta við ferðina. Ég hélt því tempói stöðugu það sem eftir var af hlaupinu.

Það var ljúft að koma í mark þar sem ég tók fram úr tveimur keppendum á góðum endaspretti við mikinn fögnuð áhorfenda. Það var ótrúlega gaman. 

Ég vissi ekkert um sundtímann en var með tíma af hjóli og hlaupi. Miðað við þetta var ég nálægt 5 tímunum en það var engin klukka í markinu svo ég gat ekki gert mér grein fyrir því hversu nálægt ég var.

Það var ekki fyrr en þeir hengdu upp úrslitin um klukkustund síðar sem ég komst að því hver endatíminn var. Ég var hæstánægður með úrslitin en það hefði nú samt verið sætara að vera undir 5 tímunum :)

Niðurstaða :

Þetta var ótrúlega gaman og maður var ótrúlega góður í skrokknum eftir keppnina. Ég sé góða möguleika á bætingu í öllum greinum. 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 08 nóvember 2006 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!