| Æfingagjöld 2006-2007 |
|
|
|
| Skrifað af Sigurður V. Smárason | ||||||||||
| þriðjudagur, 10 október 2006 | ||||||||||
|
Æfingagjöldin eru komin á hreint, ársgjaldið allur pakkinn (þjálfun í sundi, hjólreiðum og hlaupum) er 25.000kr. Þau sem vilja synda með okkur geta líka gert það og kostar það þá 20.000 kr. Eins er hægt að skipta þessu í tvennt, borga sér fyrir Sep-Des (2006) og sér fyrir Jan-Maí (2007) eins og hér segir:
Allir sem eru að æfa eru hvattir til að millifæra æfingagjöldin á reikning 512-14-600275, kt. 2501585489. Sendið endilega tilkynningu um borgun á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það Ekkert verður rukkað fyrir tímabilið Jún-Ágú (2007) enda ekki reiknað með því að þjálfari starfi á því tímabili þó svo að æfingar munu halda áfram. Eins er hægt að borga félagsgjald/fá afsláttarkort (allir sem borga ársgjald fá þetta ókeypis) á 2500 kr. Við erum að tala við nokkrar íþróttabúðir um að fá a.m.k. 10% afslátt hjá þeim og ætlum við að vera með allavega eina búð í hverri grein. Það er ekki komið á hreint hverjar búðirnar verða en við munum auglýsa afsláttarkortin nánar í næstu viku þegar við vitum meira. Ekki er skylda að kaupa þetta kort, en við vonum að sem flestir sjái sér hag í því. |
||||||||||
| < Fyrri |
|---|











