| Vorþríþraut 2006 - Úrslit |
|
|
|
| Skrifað af Sigurður V. Smárason | |
| sunnudagur, 04 júní 2006 | |
|
Allir tímar í Ólympískri vegalengd og Allir tímar i hálfólympískri vegalengd Frábær skilyrði til íþróttaiðkana hverskonar einkenndi keppnisdaginn og kemur það fram á úrslitunum eins og sjá má hér á eftir. Við fengum góða gesti frá Føroya Triathlon Felag sem tóku þátt í Ólympísku vegalengdinni, og varð það til þess að öll sæti keppninar fylltust og urðu sumir frá að hverfa. Þetta er að vissuleyti ánægjulegt fyrir félagið þar sem þetta er í fyrsta skipti sem verður "uppselt" í kepnni hjá okkur. Þáttaka í hálfri vegalengd var líka framar vonum en þar skráðu sig til leiks 14 manns. Nokkur nýbreytni var á framkvæmd keppninar, en í ár tókum við í notkun tímatökukerfi frá ChampionChip, sem er sama kerfið og er notað í stærri hlaupum hér á landi eins og t.d. Reykjavíkur maraþon. Tæknin lét reyndar aðeins standa á sér á köflum, en fór að mestu vel fram og munum við halda áfram að nýta okkur þessa tækni í næstu þrautum. Kunnum við þeim Pétri Frantz, Berki og Helga bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Færeyingar eiga greinilega nóg af góðu íþróttafólki og var keppnin í Ólympísku vegalengdinni gríðarlega sterk fyrir vikið. Leikar fóru svo að Gunnar Dahl vann með yfirburðum á tveimur tímum sex mínútúm og fimmtíu sekúndum. Torben Gregersen kom annar í mark á 2:16:43 og svo var hún Joann Bláfoss, fyrst kvenna, þriðja í mark á 2:19:20. Fast á hæla hennar kom svo heill hópur af keppendum, og luku 5 manns keppni á næstu þremúr mínútum. Í hálfólympískri vegalengd urðu úrslitin svo þannig að Hjalti Kristjánsson var fyrstur á einni klukkustund, nítján mínútum og þrjátíu og átta sekúndum. Helgi Gústafsson varð svo annar á tímanum 1:21:14 og Hartmann Bragason varð þriðji á 1:23:01. Starfsfólki og sjálfboðaliðum sem stóðu sig allir einstaklega vel er kærlega þakkað fyrir að hjálpa okkur við framkvæmd, sem og Remi keppnisstjóra sem sá um að allt færi á besta veg. ![]() Keppendur í vorþríþraut 2006 |
|
| Síðast uppfært ( miðvikudagur, 07 júní 2006 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|








