Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Lokahóf sundæfinga 2006 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
miðvikudagur, 31 maí 2006
    
Image
Sundfólkið að lokinni æfingu


Jæja þá erum við komin í frí frá skipulögðum sundæfingum þangað til í haust.  Sex hetjur mættu til leiks og var tekin létt æfing þar sem m.a. var æft sig í skriðsundi afturábak ( sjá kvimynd1 og kvikmynd2 ), blindandi skrúfusundi, kafsundi og fleiru og fleiru.  Hið sívinsæla boðsund var tekið, 3x50m, og þrátt fyrir gróft svindl (nefnum engin nöfn...)  tapliðsins vann mitt lið verðskuldaðan sigur.  Það var sæt hefnd að telja armbeygjurnar hjá þeim þegar úrslit voru orðin ljós.

Að lokum var svo "synt í mat", 40m póló sund að laugarbakkanum þar sem við gæddum okkur á brauði og öðru góðmeti.  Rémi græjaði matinn og eins var hann búinn að taka saman mætingu hjá öllum sem hafa mætt í vetur.  Hartmann var í fyrsta sæti með 110% mætingu sem verður að þykja nokkuð gott, en í öðru sæti var Rémi sjálfur með 88% mætingu og í því þriðja var Sigurbjörn Einars með 80% mætingu.

Fleiri myndir frá slúttinu eru hér.
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 31 maí 2006 )
 
< Fyrri   Næsti >
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?

Skoðanakönnun
Hver er uppáhalds vegalengdin þín í þríþraut?
 
Hver er hér
Það er(u) 23 gestir hér.
Að utan
 
Top! Top!