| Kópavogsþríþraut 2006 |
|
|
|
| Skrifað af Hartmann Bragason | |
| laugardagur, 20 maí 2006 | |
|
Mig langar að segja frá reynslu minni af Kópavogsþríþrautinni hér um daginn. Ég hafði fyrirfram nokkuð blendnar tilfinningar til hjólabrautarinnar vegna brattrar brekku og snarprar beygju sem þurfti að taka og annarra hraðahindrana. Aðra mótbáru hafði ég heyrt að hér væri um sérhannaðan heimavöll Ásgeirs að ræða. Höfðu því gárungarnir að orði að keppnin færi fram í garðinum hans Ásgeirs og Bibbu og sundkeppnin í baðkari þeirra hjóna. Hjólabrautin reyndist þegar til kom hin besta, með hæfilegum brekkum og hraðahindrunum á köflum. Helst mátti setja út á lélegar bremsur á gömlu hjólatíkinni minni sem ég ætlaði á. Þorgeir benti mér hins vegar á að Hjólreiðafélag Reykjavíkur hefur hafið leigu á götuhjólum sem reyndist mér vel. Það var drengilega gert af mínum helsta mótherja sem ég hef eldað grátt silfur við fram til þessa. Ég tek því til baka ummæli mín um að fyrsti stafurinn í nafni Þorgeirs væri prentvilla, þ.e. ætti að vera G í stað Þ. ![]() Höfundur á spretti í vorþríþraut 2005 Ég hafði lítið af öðrum keppendum að segja í hjólreiðakekppninni nema hvað ég hjólaði fram úr nokkrum konum og fullorðnum manni sem sannaði fyrir mér að ég væri þar fremstur á meðal jafningja þar sem Jens hjólaði amk tvisvar sinnum fram úr mér (að því er ég held). Áður en ég kem að sögulegasta kaflanum, þ.e. hlaupinu, vil ég geta þess að röðin í úrslitunum þar sem ég var nokkuð aftan við miðju, gaf ekki alveg rétta mynd af frammistöðu minni nema menn vilji telja það til afreksverka að vera fljótur að snara sér fram úr rúminu á morgnana og hysja upp um sig brækurnar. Ég sem sagt tapaði amk fjórum mínútúm á því að hafa ekki æft mig sérstaklega í þessari morgunleikfimi svo það er ekki neinum öðrum að kenna en sjálfum mér þó það hafi kostað mig sjálfsagt ein þrjú til fjögur sæti á topp tíu listanum. Þá kemur að mesta "afreksverki keppninnar", þ.e. frammistöðu minni í hlaupinu. Þar kom ég í mark skv. úrslitunum á uþb hálfri mínútu betri tíma en næsti maður þar sem engir aukvisar voru á ferð! Það stendur sem sagt svart á hvítu að "karlinn" hefði rúllað upp görpunum í hlaupinu. Ég vissi að ég væri liðtækur hlaupari, setti m.a. persónulegt met í 3ja km skemmtiskokki (fjölskylduhlaupi) í Neshlaupinu daginn á undan á 11.54 mínútum (verst var að þrír pottormar hirtu af mér verðlaunin). Það jafngildir því að ég hefði hlaupið á uþb einni mínútu lakari tíma en hvað árangur minn sýndi í þríþrautinni. Ég hef því ekki verið alveg sannfærður um meinta yfirburði mína. Ég viðraði efasemdir mínar við nokkra keppendur og "kærði úrslitin" til mótsnefndar. Jens kvaðst hafa ráðfært sig við tímatökumennina og höfðu þeir ekkert við tíma minn að athuga. Mig rennur þó í grun að seinni skiptitíminn (T2) hafi verið óeðlilega mikill og hundurinn lægi þar grafinn því ég dreif mig strax í hlaupið að loknum hjólreiðunum. Fleiri virtust hafa óeðlilega langan skiptitíma sem kann að hafa eðlilegar skýringar. Ef þetta reynist ekki vera skýringin þá hef ég annað hvort hlaupið á svona góðum tíma fyrir "einskæra hundaheppni" eða þá að hin dularfulla ráðgáta hvernig ég fór að því að taka alla hlaupagikkina í keppninni í nefið verður skráð á spjald sögunnar við hliðina á hinni óleystu morðgátu um Olav Palme forsætisráðherra Svía. E.S. Ritstjórinn hafði samband við mig eftir að ég sendi inn þessa grein og benti mér á að úrslitin mín í hlaupunum hefðu verið skoðuð betur. Hið sanna hefði komið í ljós að skiptitími minn (T2) hefði verið einni mínútu of langur sem lengir hlaupatíma minn sem því nemur. Það styður tilgátu mína um mína raunverulega getu sem ég rakti hér að framan. Engu að síður þá velgir sá tími nokkrum af "stórlöxunum í hlaupinu undir uggum" svo ég má vel við una. Ég vil taka fram að mér fannst að öðru leyti undirbúningur, skipulag og framkvæmd mótsins til fyrirmyndar. Það er ekkert við því að segja að einhverjir hnokkrar geti komið í ljós í sambandi við tímatökuna þegar í mörg horn er að líta. Allir sem stóðu að mótinu eiga því hrós skilið fyrir óeigingjarnt starf og góða frammistöðu. |
|
| Síðast uppfært ( mánudagur, 22 maí 2006 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|








