Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Úrslit - Vortvíþraut 2006 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
sunnudagur, 23 apríl 2006
Það leit ekki vel út með spánna fyrir vortvíþrautina frekar en áður, en 10 hraustmenni og 1 hraustkvendi létu slíkt ekki á sig fá og skelltu sér í slaginn.

Keppnin var háð á örlítið breyttri braut, totuni niður að skálanum við Elliðavatn var slept og startið/markið var við Furulund. Þá var hlaupið að mestu á stígunum, en ekki á veginum eins og áður hefur verið. Almennt létu keppendur vel af þessari breytingu, og reiknað er með að þessi háttur verði hafður einnig að hausti þegar hausttvíþrautin verður háð.

Miðað við spár var veðrið með besta móti, allavega þangað til að verðlaunaafhendingu kom, en þá skall á með haglél í smá tíma. Lítil úrkoma en smá vindur var á meðan kepnninni sjálfri stóð.

Og þá eru það sjálf úrslitin, en það var Burkni Helgason sem kom fyrstur í mark á tímanum einni klukkustund fimm mínútur og 32 sekúndur, Dagur Egonsson kom svo annar í mark rétt rúmlega fjórum mínútum síðar, og þriðji maður var Stefán Viðar Magnússon, en hann kom tæðum 7 mínútum á eftir Burkna í mark. Fyrsta og eina konan sem keppti var Eva M. Einarsdóttir og kom kláraði hún á einni klukkustund, 22 mínútum og 4 sekúndum. Við óskum þeim, svo og öllum keppendum til hamingju með árangurinn.

Í annað sinn var hituð súpa á staðnum, og kunnum við Einari "the soup-nazi" og fjölskyldu hans kærar þakkir fyrir. Eins var á boðstólnum prins pólo (Þórólfi hjá Ásbjörn Ólafsson ehf er þakkað kærlega fyrir það) og powerade fengum við hjá ÍR-skokki (mange takk!). Síðast en ekki síst þökkum við þeim Bibbu og Öddu fyrir vasklegt mótshald, svo og öðrum meðhjálpurum úr röðum aðstandenda.  Án ykkar hjálpar væri ekkert af þessu hægt!

Jæja nóg af væmni í bili... hér er svo ein mynd frá kepninni en fleiri myndir eru hér á vefnum.

ps. Veljið "Nánar" til að sjá heildarúrslitin.
Image
Jens að setja hraðamet í að útdeila vinningum....

Hér eru svo heildarúrslitin:

NafnHlaup 1
3,74 Km
T1Hjól
14,5 Km
T2Hlaup 2
3,74 Km
Alls
Burkni Helgason0:13:220:00:120:37:050:00:110:14:421:05:32
Dagur Egonsson0:14:460:00:200:38:460:00:080:15:401:09:40
Stefán Viðar Sigtryggsson0:14:030:00:230:42:460:00:150:14:481:12:15
Jens Kristjánsson0:16:290:01:260:38:330:00:480:17:321:14:48
Daníel Smári Guðmundsson0:15:450:01:260:42:020:00:530:16:091:16:15
Ásgeir Elíasson0:16:570:00:370:41:250:00:330:18:391:18:11
Helgi Egonsson0:17:140:00:380:41:460:00:100:19:051:18:53
Sigurður V. Smárason0:17:070:00:260:44:110:00:090:19:401:21:33
Eva M. Einarsdóttir0:16:590:00:270:46:480:00:060:17:441:22:04
Hartmann Bragason0:17:000:00:360:46:280:00:060:18:071:22:17
Garðar H. Kjartansson0:17:230:01:010:44:510:00:110:19:421:23:08
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 25 apríl 2006 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!