| Vor Tvíþraut ÞríR 2006 |
|
|
|
| Skrifað af Sigurður V. Smárason | |
| föstudagur, 21 apríl 2006 | |
|
Vor tvíþraut ÞríR -2006 Vor tvíþrautin verður haldin 23. apríl næstkomandi. Keppnin verður með hefðbundnu sniði, fyrst er hlaupið, svo hjólað og loks hlaupið aftur. Vegalengdir og brautir hafa breyst aðeins, en þeir sem eru vanir Heiðmörkinni ættu ekki að eiga í neinum vandræðum með að átta sig á breytingunum. Við hin kíkjum bara á kortið sem fylgir með hér að neðan.Heiðmörk, við Furulund Sunnudaginn 23. apríl, kl 10:00 Ætlunin er að flytja byrjun og endann til aðeins, og verður það núna í Furulundinum. Þá er fyrst hlaupið 2 hringir á stígum (rauð leið), svo hjólaðir tveir hringir (blá leið) og svo aftur hlaupnir tveir hringir (rauð leið). Vegalengdirnar eru þá c.a. 4km hlaup, 15km hjól, 4km hlaup. Skráning mun fara fram á staðnum, klukkutíma áður en keppnin hefst, eða frá 9 um morguninn. Keppnin hefst svo kl 10. Eins er hægt að tilkynna þáttöku með því að senda nafn og kennitölu til jensk hjá simi punktur is. Hér er svo leiðirnar á korti:
|
|
| Síðast uppfært ( laugardagur, 22 apríl 2006 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|











