| 5:31:09 |
|
|
|
| Skrifað af Sigurður V. Smárason | |
| sunnudagur, 18 september 2005 | |
|
Jæja þetta gekk framar vonum, heildartími var 5 klukkustundir 31 mínúta og 9 sekúndur. Sundið tók rúmar 27 mínútur, hjólið 2 klst. og 50 mín og hlaupið 1 klst 53 mín. Restin var svo skiptingar. Úrslitin eru ekki komin á netið ennþá en ég var sum sé 98-undi í mark af c.a. 400 manns sem tók þátt í hálfa Ironmaninum. [Viðbætur: Nú eru úrslitin komin á netið og það breyttist eitthvað röðin, ég er núna 102 af 300 þáttakendum. Lennti í 20 sæti í mínum aldursflokki]. Þetta var ótrúleg lífsreynsla og mæli ég eindregið með þessu við alla. Starfsfólkið var frábært, það voru vatnsstöðvar hverja 10 mílur í hjólinu (c.a. 5 í allt) og hverja mílu í hlaupinu (12 í allt). Niðurstöður rúlluðu inn á klukkutímafresti og allt gekk eins og vel smurð vél. Ég fékk meira að segja verðlaun fyrir að vera lengst af kominn, 45 dollara í úttekt á sólgleraugum sem voru nýtt til að kaupa ný hjólagleraugu. Þetta var algjör konudagur í gær, bæði var það kona sem var í fyrsta sæti, Michellie Jones, sem vann silfur á síðustu ólympíuleikum í þríþraut. Hún er nú að vinna að lengri vegalengdum og var þetta æfing fyrir heimsmeistaramótið í Hawai síðar á árinu. Eins voru tvær konur í liðinu sem vann liðakeppnina. Það er nokkuð víst að þetta verður maður að gera aftur, og þá að komast undir 5 tímanna. Það er næsta takmark! |
|
| Síðast uppfært ( mánudagur, 03 október 2005 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|











