Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Caliman Pistill 2 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
föstudagur, 16 september 2005

Nú er maður kominn til Davis. Hér heldur “kulda” kastið áfram, ekki nema 25 gráðu hiti, sem er 5 gráðum lægra en meðaltalið fyrir þennann árstíma. Ég er náttúrulega dauðfeginn þar sem þetta veður á betur við mig. Bærinn er frekar lítill og allt eiginlega marflatt hér. Það er búið að keyra hjólaleiðina og er hún eiginlega öll flöt nema í kringum 60km eða svo þar sem nokkrar litlar brekkur eru, en þær eru flestar stuttar og spanna ekki meira en c.a. 3-5 km. Í morgun var svo sundæfing í Sacramento Harbor, staðnum þar sem keppnin hefst. Vatnið er frekar heitt, 22 gráður, og ekki laust við að blautbúningurinn sé of mikið við þessar aðstæður. En ég ætla nú samt að vera í honum, það er tiltölulega kallt á morgnanna hér, um 10 gráður, og það er gott að láta sér ekki verða kallt í byrjun. Annars er bara að ná í skráningargögnin á eftir og svo mæta hress á morgunn og klára þetta með stæl.

Fyrir þá sem vilja fylgjast með þá mæli ég með CaliMan heimasíðunni og svo heimasíðu þriþrautarklúbbsins hérna í Davis, Mad Cows Racing.

Síðast uppfært ( föstudagur, 16 september 2005 )
 
< Fyrri   Næsti >
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?

Skoðanakönnun
Hver er uppáhalds vegalengdin þín í þríþraut?
 
Hver er hér
Það er(u) 20 gestir hér.
Að utan
 
Top! Top!