Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Góð ferð á Vestfirðina! PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
þriðjudagur, 06 september 2005

Það var góður hópur að sunnan sem gerði sér ferð í þríþraut Vasa2000 hópsins á Ísafirði um sl. helgi.

Keppnin sem fór fram laugardaginn 3.sept. byrjaði á 700m sundi í 16,6m sundlaug á Bolungarvík.  Síðan voru hjólaðir 17km yfir á Ísafjörð og að því loknu var hlaupið 7km um Ísafjarðarbæ. 

Þau sem mættu héðan til að herja á heimamenn voru:
Ásgeir Elíasson
Bryndís Baldursdóttir
Dagur Egonsson
Jens Viktor Kristjánsson
Trausti Valdimarsson
Þórdís Hrönn Pálsdóttir
Þorgeir Sigurðsson
Og sérlegur bílstjóri/þjálfari og alhliða aðstoðarmaður var Pétur Frantzsson stórhlaupari.

Leikar fóru þannig að Dagur vann þrautina, en Trausti var í öðru sæti, en heimamaður í 3.
Heildarúrslit má finna hér:  http://www.simnet.is/vasa2000/
Einnig er pistill um keppnina hér:  http://www.bb.is/?PageID=141&NewsID=58909

Heimamenn kunna svo sannarlega að setja upp flotta keppni, allt var tipptopp og allir með bros á vör.
Það er nokkuð ljóst að við sem fórum munum mæta aftur og vonandi með enn stærri hóp héðan að sunnan.


Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 september 2005 )
 
< Fyrri
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?

Skoðanakönnun
Hver er uppáhalds vegalengdin þín í þríþraut?
 
Hver er hér
Það er(u) 22 gestir hér.
Að utan
 
Top! Top!