| Leiðir |
|
|
|
| Skrifað af Sigurður V. Smárason | |
| þriðjudagur, 03 maí 2005 | |
|
Sund Synt verður í Sundlaug Seltjarnarness á fjórum brautum. Keppendur verða merktir með númeruðum sundhettum og raðað niður eftir getu. Ekki fleiri en 5 keppendur verða á hverri braut. Þáttakendum verður tilkynnt þegar 50m eru eftir.
Hjól og Hlaup Hjóla- og hlaupaleiðir eru sýndar á kortinu hér að neðan. Hjólreiðamenn verða merktir með númerum á hjálmum og hlauparar með venjulegum hlaupanúmerum að framan. Allir hjólreiðamenn verða að vera með hjálm. Hjólreiðamönnum í ólympískri vegalengd verður tilkynnt þegar einn hringur er eftir á þann hátt að tafla verður við markið þar sem númer þeirra sem eiga einn hring eftir verður skrifað á. Athugið að síðasti hringurinn í þeirri vegalengd er styttri en hinir hringirnir og er merktur sem græn leið (sama leið og sprint keppendur hlaupa).Brautarvarsla og drykkjarstöðvar
Drykkjarstöðvar verða við markið og við beygjuna hjá Gróttu. Brautarverðir verða við sinn hvorn enda Lindarbrautar, við beygjuna hjá Gróttu, við beygjuna hjá Búðagranda/Kotagranda og við ljósin hjá Eiðistorgi.![]() |
|
| Síðast uppfært ( mánudagur, 05 júní 2006 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|








