Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Nú má góða veðrið koma aftur! PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
sunnudagur, 10 apríl 2005
Image
Eftir fremur kalda viku mættu rúmlega 30 manns í vor tvíþrautina sem haldin var í dag.  Eins og sjá má hér til vinstri þá var aðeins minni snjór, en þeim mun meiri drulla, öllum til mikillar ánægju.  Veður útlit var fremur gott framan af morgni, en svo kom smá rigning til að skola í burtu restinni af snjónum rétt áður en tvíþrautin hófst.  Þetta var sum sé nokkuð hráslagaleg byrjun, en flestir keppendanna hlupu í sig hita á fyrsta hlaupaleggnum.  Þeir sem ekki voru með bretti á hjólunum fengu svo ærlegt drulluandlitsbað á hjólaleiðinni.  Ekki var rukkað sérstaklega fyrir það, en stjórn ÞríR er að hugsa um að reyna að fá fleiri konur til að taka þátt með því að auglýsa þetta rækilega upp fyrir haustið.
Við viljum þakka öllum keppendunum fyrir góða keppni og eins viljum við þakka öllum þeim sem hjálpuðu til við framkvæmd keppninar kærlega fyrir hjálpina.
Hægt er að sjá myndir fyrir og eftir keppni og svo tók Albert fullt af myndum líka.
Úrslit verða sett á netið í síðastalagi á morgun.
Hér að neðan má svo sjá tvo yngstu keppendurna, sem stóðu sig frábærlega vel.


Image
Síðast uppfært ( mánudagur, 05 júní 2006 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!