|
Sameiginlegar hjólaæfingar á sunnudögum |
|
|
|
|
Skrifað af Corinna
|
|
þriðjudagur, 16 mars 2010 |
|
Núna þegar æfingar fyrir heilan og hálfan járnkarl eru byrjaðar á fullu hjá flestum eru sameiginlegar hjólaæfingar á sunnudögum kl. 9.30. Fólk hittist við Sprengisand og er leiðin og lengd ákveðin á staðnum. Til að byrja með verða æfingar 1,5 – 2 tíma en lengjast jafnt. Á vetrartíma er hjólað á fjallahjóli og er svo skipt yfir á götuhjól þegar veðrið og stígar leyfa. Síðasta sunnudag voru mættir 11 hraustir menn og konur (4 frá ÞríR og rest “Hjólamenn”) og var hjólað í 1,5 tíma í rigningu og góðu skapi um Ellidaárdal, Grafarholt og Grafarvog. Löngu æfingar á sunnudögum eiga að vera rólegar (og langar) og tókst mjög vel að halda hópinn sl. sunnudag. Hjólamenn eru með æfingar á sama tíma og sama upphafsstað og upplagt að læra af reynslu þeirra. Endilega nýta sér félagsskap. Undirrituð fór á fyrstu hópæfingu sinu á sunnudaginn og var alsæl eftirá.
|