Metþátttaka var í Inniþríþrautinni í ár, 36 keppendur hófu keppni og 32 luku keppni.
Það er gaman að sjá hvað áhuginn á þessari skemmtilegu keppni hefur farið vaxandi en þetta var í 5. sinn sem Þríþrautarfélagið heldur Inniþríþraut.
Að vanda voru hjólin að valda okkur smá vandræðum, sem var því miður hluti af ástæðunni fyrir að ekki allir luku keppninni. En þetta er vandi sem erfitt er við að ráða þegar keppt er innanhús, framboðið af nothæfum þrek-/spinninghjólum er einfaldlega ekki það gott hér á landi að hægt sé að gera mikið betur. En þar sem allir keppendur voru meðvitaðir um að þessi keppni er meira til gamans gerð, þá fóru allir brosandi heim að keppni lokinni.
En við í ÞríR erum að sjálfsögðu opin fyrir hugmyndum að breyttu/bættu keppnisfyrirkomulagi :)
Tímatakan í Inniþríþrautinni er ekki auðveld, þar sem hraðinn er mikill, þannig fór það svo að þessu sinni að millitímar glötuðust að mestu fyrir keppendur í fyrri riðlinum (konurnar og 3 karlar). En lokatíminn er jú það sem gildir, og hann er áreiðanlegur.
Við þökkum keppendum og aðstoðarfólki okkar, sem og WorldClass í Laugum, fyrir skemmtilega keppni og vonumst til að sjá ykkur öll í næstu keppnum félagsins.