Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Ferskar fréttir PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
þriðjudagur, 09 september 2008

5 glænýjir íslenskir Járnkarlar og Þríþrautarskráin í loftið!

Sunnudaginn 7.sept. sl. bættust 4 Íslendingar og Torben okkar Gregersen (ættleiddi Danskurinn okkar) í stoltan hóp Járnkarla og -kvenna.
Steinn Jóhannsson, Torben Gregersen, Trausti Valdimarsson, Gísli Ásgeirsson og Erlendur Birgisson luku allir Köln 226 (Ironman vegalengdin) með glæsibrag.  Allir voru þeir Járnbræður á mjög góðum tímum og standa þar upp úr Steinn og Torben, sem voru sitthvoru megin við 10klst.  Tími Steins, 9:42:47, er einn langbesti tími Íslendings á þessari vegalengd en bíða verður staðfestingar á tímum Einars Jóhannssonar frá árunum 1994 og 1996 áður en úr því verður skorið hvort um nýtt Íslandsmet sé að ræða.  En glæsilegt er þetta óumræðanlega, enda Steinn, eins og þeir allir, mikill íþróttamaður.

Nánari útlistun á tímum þeirra Járnbræðra má sjá í nýstofnaðri Þríþrautarskránni, sem Stefán Þórðarson hefur sett saman fyrir okkur:  http://www.geosoft.dk/VidarAtletik/FM/Trimedlemsliste.asp
Þar má einnig sjá tíma allra Íslendinga sem lokið hafa Ironman-þríþraut (amk þeirra sem fréttir hafa spurst af) og vonir standa til að þarna verði einnig hægt að setja inn tíma í 1/2 Ironman seinna meir.

 
< Fyrri   Næsti >
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?

Skoðanakönnun
Hver er uppáhalds vegalengdin þín í þríþraut?
 
Hver er hér
Það er(u) 27 gestir hér.
Að utan
 
Top! Top!