Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Úrslit arrow Hálfkarlinn 150608 Úrslit
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Hálfkarlinn 150608 Úrslit PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gísli Ásgeirsson   
sunnudagur, 15 júní 2008
Sund 1900 1,9km 90 km   22 km  
  Sund Hjól + T1 Sund+Hjól Hlaup+T2 Tími samtals
           
Torben Gregersen 27:49 02:40:02 03:08:13 01:40:31 04:48:44
Steinn Jóhannsson 26:44 02:55:22 03:21:54 01:29:16 04:51:10
Hákon Hrafn Sigurðsson 36:38 02:39:20 03:15:58 01:59:07 05:15:05
Trausti Valdimarsson 34:17 03:04:24 03:38:41 01:50:45 05:29:26
Bruce McAdam 30:25 03:30:46 04:01:11 02:05:23 06:06:34
Hartmann Bragason 34:15 03:28:41 04:02:56 02:04:41 06:07:37
Erlendur Birgisson 41:31 03:25:26 04:04:57 02:04:15 06:09:12
Gísli Ásgeirsson 40:07 03:40:43 04:20:50 02:07:15 06:28:05
Stefán Drengsson 43:32 03:48:58 04:31:28 02:16:19 06:47:47
           
  1,9km 90 km   21,8km  
Konur Sund Hjól + T1 Sund+Hjól Hlaup+T2 Tími samtals
Hildur Edda Grétarsdóttir 36:08 04:03:08 04:39:38 02:15:45 06:55:23
Smellið hér til að sjá myndir sem Albert tók.

Hálfkarlinn 2008 fór fram í hlýju veðri en nokkrum vindi og þess gætti á hjóla-og hlaupaleiðinni sem þykir almennt séð þokkalega erfið, vegna brekkna. Engu að síður var árangur góður og gaman að sjá bætingar eins og hjá Torben og Trausta. Það ber að hafa í huga að hlaupið var 22 km og skrifast það alfarið á mælingadeild framkvæmdastjórnar (Steinn og Gísli) sem hefur ákveðið að rifja upp grunnatriði í stærðfræði fyrir næsta ár eða kaupa vandað kílómetralangt málband.

Árangur á einstökum leiðum er athyglisverður og tóku menn sérstaklega eftir hraðanum á Hákoni sem var langfljótastur á hjólinu og ef hann fer að æfa hlaup eitthvað að ráði, mega forystusauðirnir vara sig. Torben átti mjög góðan dag í öllum greinum en á hlaupinu dró Steinn vel á hann. Gaman er að bera saman tíma fyrstu manna á vegalengdunum.

Fulltrúar Bootcamp voru auðvitað mættir til leiks með góða skapið og hörkuna að vopni, ungt og hraust fólk sem hefur skapað sér eftirtektarverðan líkamsræktarstíl. Þeim gekk svo vel að í pottinum eftir hlaup voru yfirlýsingar um að kaupa sér alvöru keppnishjól fyrir næsta sumar.

Næsta ár mun ÍBH koma að framkvæmd Hálfkarlsins. Þríþrautir eru vaxandi íþrótt hérlendis og þrátt fyrir eilífðarrok, rigningu, brekkur og annað sem fylgir því að búa hérna, þá eru það bara okkar aðstæður og við breytum þeim ekki. 

Þeirri hugmynd hefur þegar verið hreyft að hefja nú þegar undirbúning að heilum Járnkarli næsta sumar! Fylgist með frá byrjun og farið að æfa! Komaso!! 

Gísli Ásgeirsson aðalritari. 

Síðast uppfært ( sunnudagur, 22 júní 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!