| Hálfur Járnkarl í Hafnarfirði 15.06.2008 |
|
|
|
| Skrifað af Gísli Ásgeirsson | |
| miðvikudagur, 28 maí 2008 | |
|
15.06.2008 – Hálfur járnkarl í Hafnarfirði
Hálfur járnkarl verður
haldin sunnudaginn 15. júní. kl. 9:00.
Upplýsingasarpur um Hálfkarlinn er hérna! NÝJAR MYNDIR AF LEIÐINNI KOMNAR! Hægt að skoða skráningar, starfsfólk og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri í athugasemdareit. Mótshaldarar svara tafarlaust.
Mætið stundvíslega og kynnið ykkur brautina vel og vandlega.
Sund: 1900m (synt í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði) Hjól: 90 km (Ath!!! Hjálmaskylda. Engin undantekning.) Hjólaðir 7 hringir á Krísuvíkurvegi. Snúningur við drykkjarstöð sem er 4km frá Suðurbæjarlaug og hjólaðir rúmir 6km upp Krísuvíkurveg og snúið þar við.
Hlaup: Hálft maraþon (hlaupnir 4 hringir á Krísuvíkurvegi, þ.e.
hlaupið frá drykkjarstöð og rúma 2, 55 km upp Krísuvíkurveg og til baka fjórum sinnum)
Drykkjarstöð verður 4km frá Suðurbæjarlaug á Krísuvíkurvegi. Boðið verður upp á orkudrykki og banana.
Ath. Eftir sundið er farið út um hliðardyr þar sem hjól verða á skiptisvæði og þaðan hjóla keppendur út á Krísuvíkurveg og virða að sjálfsögðu umferðarreglur. Hringmælingar miðast við drykkjarstöðina og þar er einnig skipt frá hjóli í hlaup. Myndin sýnir Krísuvíkurveginn þegar beygt hefur verið inn á hann frá Vallahverfinu
Athugið að það er takmarkaður þátttakendafjöldi! Laugin er 25m og bara 3 sundbrautir. Hámark 5 menn á braut.
|
|
| Síðast uppfært ( þriðjudagur, 10 júní 2008 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|











