Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Úrslit arrow Spjall um úrslitin í Þríþrautarkeppninni í Kópavogi vorið 2008
sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Spjall um úrslitin í Þríþrautarkeppninni í Kópavogi vorið 2008 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Rémi Spilliaert   
mánudagur, 19 maí 2008

Spjall um úrslitin í Þríþrautarkeppninni í Kópavogi vorið 2008

Eftir Hartmann Bragason

Þríþrautarkeppnin í Kópavogi sl. sunnudag tókst með ágætum og hafa sjaldan fleiri þátttakendur mætt til leiks.   Það er sérlega ánægjulegt að konurnar er farnar að taka aftur við sér.  Nýliðarnir settu sterkan svip á keppnina og velgdu jafnvel sumir þeirra gömlum reynsluboltum eins og undirrituðum undir uggum.  Svo var að heyra á þeim að þeir biðu í ofvæni eftir næstu keppni til þess að láta kné fylgja kviði.  Verði þeim að góðu því við erum rétt að byrja og tónninn sleginn fyrir stórátökin sem eru framundan í sumar.

Torben Gregersen varð að þessu sinni þríþrautarkóngur.  Ekki langt á eftir honum kom Sten Johannsen sem einnig var í banastuði en þeir félagar eru mjög jafnir að getu og hafa áður “borist á banaspjótum”.  Öruggt má því heita að Torben fær ekki að hvíla lengi á lárviðarlaufi sínu vilji hann segja endanlega skilið við annað sætið.  Þeir kumpánarr eru í sérflokki og virðast fáir í karlaflokki líklegir á næstunni að geta velt þeim úr sessi.

                Að sama skapi varð Helga Árnadóttir þríþrautardrottning í kvennaflokki sem hún sigraði með miklum yfirburðum.  Ekki er nóg með að hún beri höfuð og herðar yfir stallsystur sínar heldur hjó tími hennar langt inn í raðir karlanna því tími hennar var ekki langt frá tíma karlanna í 3.-5. Sæti.  Helga hefur verið mjög dugleg við æfingarnar í vetur enda hefur hún uppskerið sem hún hefur sáð.  Gárungarnir segja reyndar að það hafi gefið henni byr undir báða vængi er hún krækti í einn besta hlaupara okkar Stefán Viðar Sigtryggsson sem átti sitt debut (fyrstu keppni) í þríþrautarkeppni.  Þó hann yrði eins og fleiri góðir drengir að lúta í lægra hald fyrir vinkonu sinni átti hann góða innkomu og öruggt er að ekki er langt í að Stefán fari að skipa sér í fremstu raðir þríþrautarmanna, sérstaklega ef Stebbi nær tökum á sundinu (þe. Sundtökunum) og kaupir sér nýtt hjól.

                Annar nýliði (?) í þríþraut sem vakti óskipta athygli var skagamaðurinn Jón Hugi Harðarson sem náði þriðja sæti skammt á undan félaga sínum Trausta Valdimarssyni.  Hann kvartaði þó undan brekkunum á Kársnesinu enda ekki vanur þeim á Akranesi.

                Að mér vitandi var tímatakan hnökralaus að þessu sinni en smá ruglingur kom upp hjá nokkrum keppendum hvernig loka bæri hjólakeppninni.  Það gengur betur næst og fleiri glæsileg þríþrautarmót á döfinni.

Kv. Hartmann

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 21 maí 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!