Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Frá Hartmanni: Um inniþríþrautina í Laugum. PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Hartmann Bragason   
mánudagur, 25 febrúar 2008
ÚRSLITIN Í INNI-ÞRÍÞRAUTINNI:



Í fyrra komu þríþrautarkonurnar, sáu og sigruðu en að þessu sinni var

metþátttaka hjá karlpeningnum (sjá úrslit: http://www.triceland.net).

Bryndís Ernstdóttir vann kvennaflokkinn með miklum yfirburðum enda er hún,

ásamt öðrum systkinum sínum, mikil hlaupakona og “gömul í sund-hettunni”.



Athygli vekur að þrjár kvennanna voru þýsk-íslenskar en í karlaflokkinum

kepptu tveir Danir, auk Englendings og Spánverja (?). Yfirumsjón með

keppninni hafði og “Frakkinn” Remi sem er formaður Þrír-R. Þetta sýnir vel

hina breyttu samsetningu Íslendinga og þær vinsældir sem þríþrautin nýtur

erlendis.



Annað sem vekur athygli er hversu jafn og góður karlaflokkurinn var. Sem

dæmi var undirritaður í þriðja sæti í fyrra en þrátt fyrir að hann hafði

bætt sig um eina mínútu í ár hafnaði hann nú í miðjum flokkinum. Engu að

síður þykir frammistaða hans og aldursforsetans, Sigurbjörns Einarssonar

sýna og sanna að “gömul vín batna með aldrinum”.



Sundþjálfarinn Niklas Brix varð óvænt í þriðja sæti en hann þjálfar m.a.

þrír-R. Steinn Jóhannsson vann keppnina naumlega en hin gamalreynda

fjölíþróttakempa Torben Gregersen var aðeins nokkrum sekúndum á eftir

(örlaganorn lagði eitt sinn á Torben að vera (nær) alltaf í 2. Sæti).

Steinn hefur einkum látið af sér kveða í maraþonhlaupum. Þessir kappar,

ásamt hinum fræknu maraþonhlaupurum Gísla Ásgeirssyni og Trausta

Valdimarssyni, stefna að því ásamt öðrum að keppa í járnkarlinum í Köln í

sumar og víðar. Það má ekki minna vera en að keppt verður aftur í

hálfum-járnkarli á Íslandi í sumar sem verður ómetanlegur undirbúningur

fyrir þessa erfiðu keppni.



Þess má geta að Gísli skrifaði skemmtilega grein í vefsíðu Þrír-R um

Inni-þríþrautina í ár. Gísli vitnaði m.a. í Grettis sögu Ásmundarsonar,

þar sem hann kom með frumlega kenningu um að Grettir hefði verið fyrstur

manna til þess að keppa í þríþraut, amk hér á landi. Gísli hyggst

endurreisa Grettis-þríþrautina aftur til vegs og virðingar en hún þykir

vera með frumlegu sniði. Keppnin hefst væntanlega 1. Apríl í ár með

Drangeyjarsundi því fylgt verður dyggilega í spor Grettis.



Af gefnu tilefni langar mig að minnast á að mikið álag er á tímatökumönnum

í þríþrautarkeppnum. Það geta því komið fyrir mistök í sambandi við

tímatökuna. Ef einhverjir keppenda renna í grun um að ekki sé allt með

felldu með tíma þeirra er nærtækast að senda Remi skeyti þ.a.l. en hann er

í þríþrautarliðinu.



Hartmann Bragason 25.2.2008 06:
Síðast uppfært ( mánudagur, 25 febrúar 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!