|
Skrifað af Gísli ritari
|
|
föstudagur, 22 febrúar 2008 |
|
Í fyrirsögninni er vísað til færeyskrar rímu um Gretti sterka Ásmundarson en hann hefði verið liðtækur þríþrautarmaður ef upp á slíkt hefði verið boðið í þá daga. Hans þraut hófst á Drangeyjarsundi um hávetur og því næst giljaði hann griðkonu á bænum sem henti gaman að hreðjum hans. Að því loknu skokkaði hann til næsta bæjar. Þessa þríþraut Grettis ættum við að endurtaka við tækifæri, helst um hásumar.
Eftir þennan formála er hægt að segja frá inniþrautinni sem fór fram í Laugum í gærkvöldi. Þangað mættu 15 karla og 8 konur og hófu konur keppni. Í kvennaflokki var hin fislétta og tindilfætta Bryndís Ernstdóttir fyrst upp úr lauginni og lét forystuna aldrei af hendi en hún fékk harða keppni á spinninghjólinu. Það átti eftir að sýna sig að þar unnu margir upp tapaðar mínútur í lauginni en Bryndís lét sig ekki og höfnuðu þær Jóhanna Arnþórsdóttir og Steffie Gregersen að lokum í 2. og 3. sæti.
Síðan vorum vér karlmenn ræstir. Undirritaður var í hægasta hópnum og veitti ekki af því sjaldan hefur hundasund verið sýnt með jafn tígurlegum hætti. Að vísu brá fyrir bringusundi inn á milli og á tímabili hugleiddi ég að vaða í mark. Nokkuð ljóst að herða verður sundþjálfun.
Skiptitíminn var í lágmarki því með aðstoð skóhorns var smeygt sér í skóna og hlaupið upp. Spinninghjólið var stillt á einhverja mótstöðu sem Jens hafði reiknað hávísindalega út og ég var ánægður með að halda 120 snúningum á mínútu þar til ég leit á skjáinn hjá Steini Jóhanns sem var þá í 140 og var grimmur á svipinn. Mikil keppnisharka ríkti í karlahjörðinni og flugu upplýsingar um vegalengd á milli og þóttu sumar ýktar.
Svo lauk hjólinu og ég skokkaði stirðlega niður stigann og þótti mér skvompa óþægilega í skónum því nú sýndi sig að ekki er gott að vera sokkalaus. Þetta slapp til en mér fannst ég renna til í hverju skrefi og þorði ekki að auka hraðann á brettinu fyrr en í lokin. Þá voru fyrstu menn löngu búnir og byrjaðir að skokka niður.
Mikil ánægja sveif yfir vötnum að keppni lokinni og var skálað í Powerade á báða bóga meðan Remi keppnisstjóri, Siggi Smára og Eddi báru saman blöð og reiknuðu út. Svo voru verðlaun afhent og fulltrúi Hafnfirðinga, Steinn Jóhannsson, sigraði í karlaflokki, en Torben Gregersen og Niklas Brix (sundþjálfari þríþrautarfélagsins) voru ekki langt undan í 2. og 3. sæti.
Niðurstaða: Frábær keppni, vel skipulögð og næsta víst að ég verð með að ári. Úrslit eru væntanleg.
|
|
Síðast uppfært ( föstudagur, 22 febrúar 2008 )
|