| Sundnámskeiðið í Laugum |
|
|
|
| Skrifað af Gísli Ásgeirsson | |
| sunnudagur, 17 febrúar 2008 | |
|
Sá sem hér fer höndum um lyklaborð er nógu árrisull til að fara á morgunæfingar og heimsóknin í Laugar á föstudag fyrir rúmri viku, hófst á því að þurfa að leita að innganginum. Erindið var hávísindaleg úttekt á skriðsundsnámskeiði ÞRÍR en þar lærir fólk á besta aldri að synda hundasund fyrir lengra komna. Stundvísi er dyggð og ritari var fyrstur niður í laugina og hafði hana fyrir sig fyrst um sinn. Síðan tíndist fólkið inn, beið drjúga stund eftir Niklas kennara sem forfallaðist af einhverjum ástæðum en Remi stökk í hlutverk kennarans og var sem hann hefði aldrei gert annað. Lærisveinkur hans og sveinar syntu hlýðin ferð eftir ferð eins og allir gerðu auðvitað til að nýta klukkutímann. Laugin var stillt á rúma 50 metra og fyrir fólk sem er vant 25 metrum er hver ferð heil eilífð til að byrja með, einkum þegar skrokkurinn er stirður og bægslagangurinn ótæpilegur. En við syntum okkur til yndisauka og settumst svo í pottinn, héldum örstuttan stjórnarfund, enda allir í stjórn ÞRÍR á staðnum, nema Kári. Niðurstöður: Morgunstund er meinhollt. |
|
| Síðast uppfært ( sunnudagur, 17 febrúar 2008 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|







