| Tvö athyglisvert mót framundan |
|
|
|
| Skrifað af Rémi Spilliaert | |
| miðvikudagur, 19 desember 2007 | |
|
Tvö athyglisvert mót framundan Þorláksmessusund Árlegt 1500m Þorláksmessusund Breiðabliks Garpa verður haldið 23 desember í Sundlaug Kópavogs Upphitun hefst kl. 8:00 og ræst verður stundvíslega kl. 8:30. Keppnisgjald er 500kr -Tímtaka -Laugargjald -Morgunverður að sundi loknu Allir garpar að rífa sig á stað og hreinsa út fyrir jólamatnum. Hlökkum til að sjá sem flesta! Gamlárshlaup ÍR 31. des. - kl. 13:00 við Alþingishúsið 10 km Hlaupaleið: Rásmark í Kirkjustræti, hlaupið er vestur í bæ og út á Seltjarnarnes, til baka um Ægissíðu og Suðurgötu að endamarki við Ráðhúsið í Tjarnargötu. Þátttökugjald: 1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 15 ára og yngri (f. 1993) Skráning: Hægt er að skrá sig á hlaup.is til miðnættis 30. desember. Á hlaupdegi verður hægt að skrá sig á staðnum í Oddfellowhúsinu, Vonarstræti 10 frá kl. 11:00 til þar til 10 mínútum fyrir hlaup, keppendur eru vinsamlegast beðnir um að virða það. Aldursflokkar: Keppt er í 7 flokkum karla og kvenna (alls 14 flokkar): 18 ára og yngri, 19-39 ára, 40-44 ára, 45-49 ára, 50-54 ára, 55-59 ára, 60 ára og eldri. Verðlaun: Allir sem ljúka hlaupinu fá verðlaunapening, auk þess sem veitt eru verðlaun fyrir þrjá fyrstu í mark í karla- og kvennaflokki. Að vanda verða dregin út útdráttarverðlaun. Frekari upplýsingar á www.hlaup.is eða í síma 898- 8798
|
|
| Síðast uppfært ( miðvikudagur, 19 desember 2007 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|











