Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Úrslit arrow Æfingar - Nýjungar
sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Æfingar - Nýjungar PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Rémi Spilliaert   
mánudagur, 26 nóvember 2007

Fyrst, vil ég minna á árshátíðina okkar, laugardaginn 1. december hjá Trausta – Heiðargerði 4. Það er búið að panta Paellu hjá franska kokkinum Francois Fons, ( http://www.veislafons.is/ser_paella.htm ) og er nauðsynlegt fyrir okkur að vita hve margir munu mæta. Verð er 2.000kr. á mann. Drykkir innifalnir (bjór og vín í skynsamlegu magni). Látið Jens ( Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það ) vita fyrir þriðjudaginn 27. nóv.

 


Um æfingarnar:
1. HLAUP: Við höfum gert samkomulag við Frálsíþróttadeild ÍR um að Þríþrautarfélagið geti æft með hópnum hennar Mörthu Ernstdóttur einu sinni í víku.
Æfingar eru inni í Laugardalshöllinni á miðvíkudögum frá kl. 17 til ca kl. 19 . Vanalega er byrjað á 4 km upphitun úti og síðan er farið í höllina til að taka “interval training” á hlaupabrautinni. Þetta eru tilvalnar æfingar fyrir alla þríþrautagarpa og sérstaklega fyrir þá sem eru að stefna á Iron man eða hálft Iron man á næsta ári. Margir langhlauparar æfa hjá henni, meðal annars Íslandsmeistarar 2007 í maraþoni, Valur þórsson og Sigurbjörg Eðvarðsdóttir.
Þessar æfingar kosta, 1.800 kr. á mánuði. Innifalið er aðgangur í Höllina og frábær leiðsögn Mörthu. Gjöldin greiðast á reikning þríþrautarfélagsins, (sjá neðst). Samkomulagið er til lok maí á næsta ári. Þeir sem vilja nýta þennan kost, eru beðnir að greiða allan tímann í einu, þ.e.a.s., 10.800,- fyrir 6 mán.

2. SUND: Við erum núna með nýjan sundþjálfara . Mads er að draga sig í hlé og hefur útvegað fyrir okkur ungan og frískan mann í staðinn, danska landsliðsmanninn Niklas Brix.
Fyrsta æfingin sem hann leiddi, siðasta fimmtudag lofar góðu og ég er alveg sannfærður um að þessar æfingar eiga eftir að bera góðan árang.
Æfingar eru á mánudögum kl. 19.15 til 20.45 og  á fimmtudögum kl. 20.30 til 21.30. 

3. HJÓL: Ég minni á spinning æfingarnar okkar á sunnudögum kl. 12 í Laugum undir frábærri leiðsögn Jens.

Ég hvet alla til að nýta  hluta af  eða allar þessar æfingar.
Að lokum langar mig að biðja alla sem hafa ekki greitt sundæfingagjöldin í vetur að gera það sem fyrst.

Borga sundæfingagjöld núna fyrir allt tímabilið, til 31.maí 2008: 20.000kr.
Borga í tvennu lagi: Okt - Des. 8.500kr.
Janúar - Maí: 13.500 kr.

Þeir sem synda einu sinni í viku greiða helming ofangreindra gjalda.
Þeir sem hafa ekki synt  frá byrjun:  3.500kr á mánuði.
Reikningur: 0512 -14- 600275      Kt. 250158-5489
Í öllum tilfellum sendið tilkynningu um greislu á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Sjáumst öll á næstunni,
Rémi


Síðast uppfært ( mánudagur, 26 nóvember 2007 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!