|
Fyrst, vil ég minna á árshátíðina okkar, laugardaginn 1. december hjá Trausta – Heiðargerði 4. Það er búið að panta Paellu hjá franska kokkinum Francois Fons, ( http://www.veislafons.is/ser_paella.htm ) og er nauðsynlegt fyrir okkur að vita hve margir munu mæta. Verð er 2.000kr. á mann. Drykkir innifalnir (bjór og vín í skynsamlegu magni). Látið Jens (
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
) vita fyrir þriðjudaginn 27. nóv.
Um æfingarnar: 1. HLAUP: Við höfum gert samkomulag við Frálsíþróttadeild ÍR um að Þríþrautarfélagið geti æft með hópnum hennar Mörthu Ernstdóttur einu sinni í víku. Æfingar eru inni í Laugardalshöllinni á miðvíkudögum frá kl. 17 til ca kl. 19 . Vanalega er byrjað á 4 km upphitun úti og síðan er farið í höllina til að taka “interval training” á hlaupabrautinni. Þetta eru tilvalnar æfingar fyrir alla þríþrautagarpa og sérstaklega fyrir þá sem eru að stefna á Iron man eða hálft Iron man á næsta ári. Margir langhlauparar æfa hjá henni, meðal annars Íslandsmeistarar 2007 í maraþoni, Valur þórsson og Sigurbjörg Eðvarðsdóttir. Þessar æfingar kosta, 1.800 kr. á mánuði. Innifalið er aðgangur í Höllina og frábær leiðsögn Mörthu. Gjöldin greiðast á reikning þríþrautarfélagsins, (sjá neðst). Samkomulagið er til lok maí á næsta ári. Þeir sem vilja nýta þennan kost, eru beðnir að greiða allan tímann í einu, þ.e.a.s., 10.800,- fyrir 6 mán.
2. SUND: Við erum núna með nýjan sundþjálfara . Mads er að draga sig í hlé og hefur útvegað fyrir okkur ungan og frískan mann í staðinn, danska landsliðsmanninn Niklas Brix. Fyrsta æfingin sem hann leiddi, siðasta fimmtudag lofar góðu og ég er alveg sannfærður um að þessar æfingar eiga eftir að bera góðan árang. Æfingar eru á mánudögum kl. 19.15 til 20.45 og á fimmtudögum kl. 20.30 til 21.30.
3. HJÓL: Ég minni á spinning æfingarnar okkar á sunnudögum kl. 12 í Laugum undir frábærri leiðsögn Jens.
Ég hvet alla til að nýta hluta af eða allar þessar æfingar. Að lokum langar mig að biðja alla sem hafa ekki greitt sundæfingagjöldin í vetur að gera það sem fyrst.
Borga sundæfingagjöld núna fyrir allt tímabilið, til 31.maí 2008: 20.000kr. Borga í tvennu lagi: Okt - Des. 8.500kr. Janúar - Maí: 13.500 kr.
Þeir sem synda einu sinni í viku greiða helming ofangreindra gjalda. Þeir sem hafa ekki synt frá byrjun: 3.500kr á mánuði. Reikningur: 0512 -14- 600275 Kt. 250158-5489 Í öllum tilfellum sendið tilkynningu um greislu á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Sjáumst öll á næstunni, Rémi
|