Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Úrslit arrow Aðalfundur og uppskeruhátið
sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Aðalfundur og uppskeruhátið PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
miðvikudagur, 21 nóvember 2007

Aðalfundur og uppskeruhátíð Þríþrautarfélags Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 1.des nk.  í Heiðargerði 4 (heima hjá Trausta Valdimarss).

Fjörið byrjar kl.18 með mat og drykk, en formleg aðalfundarstörf hefjast kl.20.
Dagskrá aðalfundar:
Skýrsla stjórnar
Tilnefning Þríþrautarmanns og -konu ársins
Kosning stjórnar
Keppnisdagskrá næsta árs og skipulag æfinga
Opin umræða

Við ætlum að vera með svipað fyrirkomulag á mat og drykk og hjá Remi fyrir ári síðan, þannig að pantaður verður veislumatur (þau sem brögðuðu á paellunni hjá Remi í fyrra vita að von er á góðum mat) og drykkir með mat (vín/bjór/gos/vatn).
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það í síðasta lagi mánudaginn 27.nóv.
Verð er 2.000kr á haus.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
með kveðju,
Stjórnin

 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!