Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim
sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Aðalfundur Hjólreiðanefndar ÍSÍ PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
miðvikudagur, 14 nóvember 2007
Aðalfundur Hjólreiðanefndar ÍSÍ verður haldinn föstudaginn 16. nóvember n.k. í stóra sal í húsnæði ÍSÍ í Laugardal og hefst kl. 18.

Vegna fyrirætlunar Hjólreiðanefndar að sækja um aðild að Alþjóðahjólreiðasambandinu, þarf nefndin að afla sér lýðræðislegs umboðs. Því verður í fyrsta skipti kjörið í nefndina, en í henni eiga sæti þrír nefndarmenn. Framboðsfrestur er þar til kjör hefst á föstudaginn.

Dagskrá:
Ræða formanns
Þá verða almennar umræður um keppnishjólreiðar á Íslandi. Bera má fram lagabreytingatillögur.
Meðal efnis sem verður reifað er:
Framkvæmdastjóri Hjól, reynsla og hvort að einhver hafi áhuga á starfinu fyrir næsta tímabil Keppnisdagskráin, fjöldi keppna, álag á keppendur.
Íslandsmeistaramót í júlí
Bikarmót vs. prótúr
Embætti fjölmiðlafulltrúa og styrktarsafnara Hjól sem væri á prósentum
Íslandshjólreiðarnar, hversu margir dagar, fara út á land
Tímatökukeppnir, þróun og lengd.
Lög og reglur
Sérsamband vs. hjólreiðanefnd
Lagabreytingar og önnur mál.

Eftir umræður fer verðlaunaafhending fram.
Tilkynnt verður um val á hjólreiðamanni og hjólreiðakonu ársins.

Kjör nýrrar hjólreiðanefndar.

Veitingar verða í boði hjólreiðanefndar.

 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!