Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Úrslit arrow Keppnir á næstunni
laugardagur, 19 maí 2012
 
 
Keppnir á næstunni PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
miðvikudagur, 05 september 2007

Það verður mikið að gera á næstunni við að mæta í allar keppnir sem í boði eru...

Um næstu helgi verður efnt til landskeppni við Færeyinga í hjólreiðum.
Hjólaðar verða þrjár dagleiðir, við Marel í Garðabæjarhrauni, í Hvalfirði og á Krísuvíkurleið. Keppt verður í tveim flokkum í báðum kynjum. Opnum flokki sem allir þátttakendur verða með í og flokki 18 ára og yngri. (nánari uppl. hér að neðan)

Í næstu viku bíða síðan þríþrautir, fimmtudaginn 13. á Suðurnesjum (nánar auglýst síðar) og laugardaginn 15. á Akureyri (sjá www.hlaup.is).

Um næstu helgi verður efnt til landskeppni við Færeyinga í hjólreiðum.
Hjólaðar verða þrjár dagleiðir, við Marel í Garðabæjarhrauni, í Hvalfirði og á Krísuvíkurleið. Keppt verður í tveim flokkum í báðum kynjum. Opnum flokki sem allir þátttakendur verða með í og flokki 18 ára og yngri. Níu Færeyingar hafa skráð sig til leiks og er búist við góðri þátttöku Íslendinga.
Helstu viðburðir helgarinnar verða sem hér segir:
Föstudagur kl. 19.30: Garðabær við Marel, hópstart, 34 hringir í karlaflokki ca. 40,8 km. Kvennaflokkur hjólar 24 hringi, ca. 28,8 km.
Laugardagur kl. 10.00: Hvalfjörður, hópstart.
Hjólað verður frá Félagsgarði í Kjós 17,5 km inn Hvalfjörðinn. Þessi leggur er farinn fram og til baka, tvisvar sinnum, ca. 70 km í karlaflokki. Kvennaflokkur hjólar 1 bunu fram og til baka, ca. 35 km.
Sunnudagur kl. 12.00: Tímakeppni á Krísuvíkurleið. Byrjað við Bláfjallaafleggjara og hjólaðar tvær "pulsur" niður og upp malbikið á Krísuvíkurleið ca. 30 km í karlaflokki. Kvennaflokkur hjólar eina "pulsu" ca. 15 km. Farið verður í Bláalónið á eftir.
Sunnudagur kl. 20.00: Pizza- eða grillveisla.
Þátttökugjald 2000 krónur fyrir hverja dagleið en 4000 ef greitt er samtímis fyrir allt mótið. Hægt er að greiða inn á reikning Hjólamanna nr. 101 26 705815, kt. 580105-0840 og senda staðfestingu á netfangið: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það fyrir kl. 12 á föstudag.

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 05 september 2007 )
 
< Fyrri   Næsti >
Að utan
 
Top! Top!