| |
|
|
|
|
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
sunnudagur, 26 ágúst 2007 |
|
Fyrsta 1/2 Ironman þríþrautin á Íslandi fór fram í dag, sunnudaginn 26.ágúst, í frábæru keppnisveðri í Mosfellsbæ. Sjö ofurhugar lögðu af stað kl.9:30 í morgun, og fjórir þeirra kláruðu alla vegalengdina. Það var athyglisvert að meðal keppenda voru tveir nýliðar í þríþrautarkeppnum, Sigmundur Stefánsson og Nils Óskar Nilsson, og luku þeir báðir keppni með bros á vör. ! 27.sept - Komnar myndir !
Byrjað var á að synda 1900m í Varmárlaug, þvínæst var hjólað til Þingvalla og tilbaka (87km), og að lokum voru hlaupnir þrír 7km hringir um Mosfellsbæ. Torben Gregersen og Freyr Pétursson voru fyrstir upp úr lauginni og löggðu af stað á hjólalegginn með ca 5mín forskot á næstu menn. Á eftir þeim komu Hákon Hrafn, Remi, Trausti og Sigmundur, en Nils var síðan nokkuð á eftir. Menn voru fljótir austur yfir Mosfellsheiði með létta gjólu í bakið, en á bakaleiðinni hægði á flestum, en þó minnst á Torben og Hákoni. Þegar Torben lagði af stað í hlaupalegginn var hann með 3mín forskot á Hákon og 20mín á næstu menn. Allir keppendur skiluðu sér í sæmilegu ásigkomulagi og án óhappa af heiðinni, en Remi ákvað þó að leggja ekki í hlaupalegginn. Þar urðu síðan meiri afföll, fyrst þegar Freyr villtist af leið á fyrsta hring og hætti eftir það keppni, og stuttu síðar ákvað Hákon að hætta keppni vegna meiðsla. Torben hljóp mjög vel og tryggði sér öruggan sigur á tæplega 5 tímum, sem er mjög góður tími í þessari löngu þrekraun. Nokkuð á eftir honum kom Trausti í 2.sæti og því næst byrjendurnir Sigmundur og Nils. Keppnisstjórn þakkar keppendum fyrir þátttökuna og óskum þeim til hamingju með að hafa tekið þátt í þessari þrekraun sem hálfur Járnkarl svo sannarlega er. Einnig þökkum við öllu því góða fólki sem kom og aðstoðaði okkur við keppnishaldið í dag, sem og þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur með góðum veitingum fyrir bæði keppendur og starfsfólk (Vífilfell, Ölgerðin, Danól og Mata). | | Sund | | Hjól | | Hlaup | | | 1/2 Ironman | 1900m | T1 | 87km | T2 | 21km | Samtals | | 1 | Torben Gregersen | 29:57 | 1:50 | 2:44:06 | 1:52 | 1:38:00 | 4:55:45 | | 2 | Trausti Valdimarsson | 36:52 | 3:32 | 3:06:17 | 2:32 | 1:50:05 | 5:39:18 | | 3 | Sigmundur Stefánsson | 34:17 | 5:31 | 3:31:52 | 4:59 | 1:50:25 | 6:07:04 | | 4 | Nils Óskar Nilsson | 41:00 | 6:13 | 3:31:57 | 5:30 | 1:55:00 | 6:19:40 | | DNF | Hákon Hrafn Sigurðsson | 36:05 | 2:19 | 2:40:47 | 1:38 | | | | DNF | Freyr Pétursson | 30:16 | 2:23 | 3:02:51 | 1:09 | | | | DNF | Remi Spilliaert | 35:05 | 4:43 | 3:02:08 | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | Hlaup - millitímar | | | | | | | | | Hringur | 1 | 2 | 3 | Samtals | | | | Torben | 29:22 | 32:59 | 35:39 | 1:38:00 | | | | Trausti | 33:17 | 35:38 | 41:10 | 1:50:05 | | | | Sigmundur | 35:08 | 37:30 | 37:47 | 1:50:25 | | | | Nils | 37:40 | 35:10 | 42:10 | 1:55:00 | | | | Hákon | 33:11 | | | | | |





 |
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 27 ágúst 2007 )
|
|
|
|
|
Hver er hér |
|
Það er(u) 24 gestir hér. |
|
|