|
Úrslit: Kópavogsþríþraut 2007 |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurður V. Smárason
|
|
mánudagur, 14 maí 2007 |
Samkvæmt venju lék sólin á alls oddi og keppendur fengu fínasta keppnisveður. Leikar enduðu þannig að Ólafur Marteins kom fyrstu í mark á 37 mínútum og 48 sekúndum, annar varð Steinn Jóhansson á 38:11 og Jens Kristjánsson varð þriðji á 38:47. Fyrsta (og eina) konan sem tók þátt kom í mark á 50 mínútum og 22 sekúndum. Trausti Vals varð svo fyrir því óláni að það sprakk hjá honum á hjólinu og gat hann því ekki lokið við þann hluta leiðarinnar.
Heildarúrslit má svo sjá hér að neðan.
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 17 maí 2007 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
fimmtudagur, 03 maí 2007 |
Hin árlega Kópavogsþríþrautverður haldin í Sundlaug Kópavogs sunnudaginn 6. maí, kl.9:30 400m sund – 10km hjól – 2,5km hlaup
Keppnisgjald kr. 1000 Keppni hefst kl. 9:30, en keppendur verða að vera mættir og búnir að borga keppnisgjald fyrir kl. 9:00 Hægt er að skrá sig fyrirfram með því að senda tölvupóst á netfangið bryndis(at)itn.is Ath. takmarkaður þátttakendafjöldi. Hér má sjá mynd af keppnisleiðinni: http://www.triceland.net/index.php?option=content&task=view&id=50
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 03 maí 2007 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Jack Arvid á Íslandi helgina 4. - 6. Maí 2007 |
|
|
|
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
föstudagur, 27 apríl 2007 |
|
Á vegum Hjólreiðanefndar ÍSÍ verður efnt til sérstakrar dagskrár um hjólreiðar helgina 4. - 6. Maí . Danski hjólreiðamaðurinn Jack Arvid Olsen mun heimsækja okkur og vera með þrjú námskeið og fyrirlestur um æfingar og keppnir. Jack mun í umfjöllun sinni leggja út frá svo kallaðri Pafei-æfingatækni sem mjög er að ryðja sér til rúms innan hjólreiðaíþróttarinnar. Föstudag, laugardag og sunnudag kl. 14:00 til 15:30 verða hópæfingar í leikfimisal þar sem Jack mun leiða menn í gegnum bæði líkamlegar og sálfræðilegar æfingar. Laugardaginn 5. maí kl. 18:00 til 20:00 heldur Jack síðan fyrirlestur um efnið í víðara samhengi. Pafei-tæknin gengur í stórum dráttum út á þá hugmynd að "þú (sem hjólreiðamaður/íþróttamaður) ert ekki sterkari en veikasti hlekkurinn". "Hlekkirnir" eru m.a. þol, tækni, hrástyrkur, sprengikraftur, "timing", "interval", jafnvægi og "rytmi". Fyrirlesturinn verður opinn öllum (hóflegur aðgangseyrir), en skráð verður í æfingatímana þar sem fjöldi þáttakenda er takmarkaður. Áhugasamir geta skráð sig hjá undirrituðum á e-mail: jenskristjans(at)simnet.is Fyrirlestur og æfingar verða á dönsku . Góðir félaga, nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri og takið frá helgina 4. - 6. maí. Fljótlega verður auglýst nánar um endanlegar tímasetningar og staðsetningu atburðanna. |
|
|
Skrifað af Sigurður V. Smárason
|
|
þriðjudagur, 24 apríl 2007 |
Þá eru úrslitin loksins komin fyrir vortvíþrautina í ár. Við vorum óvenju heppin með veður í þetta skiptið, og reikna mótshladara með að á næsta ári verði sól og blíða.
Það var keppt í tveimur vegalengdum, annarsvegar hinni venjubundnu 3,74km/14,5km/3,74km og svo helmingi styttri útgáfu. Það var fín mæting hjá okkur, 16 keppendur alls, 4 í styttri vegalengdinni og 12 í þeirri lengri.
Úrslit lengri þrautarinnar eru þá þannig: Í karlaflokki kom Torben Gregersen fyrstur í mark á tímanum 1:02:07 sem er jafnfram vallarmet á þessari braut. Á hæla honum komu svo þeir Daníel Smári Guðmundsson (1:03:47) og Birkir Marteinsson (1:04:23). Þess má geta að Torben hefur oftast vermt annað sætið í þessari keppni, en í ár stóð honum enginn á sporði og sigraði hann með nokkrum yfirburðum eins og sjá má.
Tvær hörkuduglegar konur tóku þátt í lengri vegalengdinni og kom Rakel Ingólfsdóttir fyrr í mark á tímanum 1:13:02 á meðan Sólveig Kristjánsdóttir kom í mark á tímanum 1:17:38
Í styttri vegalengdinni voru konur í meirihluta, en Haukur Eggertsson kom fyrstur í mark á tímanum 0:35:49 og Eva Einarsdóttir var fyrst kvenna með tíman 0:37:22
(veljið nánar til að sjá öll úrslitin)
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 24 apríl 2007 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 73 - 80 af 130 |