|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
miðvikudagur, 24 október 2007 |
|
Haust Tvíþrautin fór fram í Heiðmörk sl. laugardag. Þátttaka var því miður minni en oftast áður, en 5 keppendur mættu og börðust við rokið, rigninguna og tóku vel á því. | úrslit | | 3,74 | km | 14,5 | km | 3,74 | km | | Sæti | Nafn | Hlaup | T1 | Hjól | T2 | Hlaup | Alls | | 1 | Hákon Hrafn Sigurðsson | 00:15:45 | 00:00:29 | 00:35:35 | 00:00:06 | 00:17:21 | 01:09:16 | | 2 | Birkir Marteinsson | 00:15:14 | 00:00:36 | 00:37:58 | 00:00:05 | 00:16:10 | 01:10:03 | | 3 | Remi Spilliaert | 00:18:30 | 00:02:01 | 00:40:41 | 00:00:48 | 00:18:14 | 01:20:14 | | 4 | Hartmann Bragason | 00:16:14 | 00:00:26 | 00:48:37 | 00:00:13 | 00:17:33 | 01:23:03 | | 5 | Gréta Guðnadóttir | 00:19:37 | 00:00:54 | 00:52:46 | 00:00:55 | 00:20:21 | 01:34:33 |
Gaman var að sjá nýliðann Grétu klára á þessum fína tíma, vonandi verður þátttaka kvenna betri í vor þegar við höldum aftur Tvíþraut. |
|
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
mánudagur, 10 september 2007 |
Hjólahópurinn á Akureyri stendur fyrir þríþraut með Akureyrarhlaupinu 15 september. Vegalengdir sem boðið er uppá eru annarsvegar 1000m sund, 30 km hjól og 10 km hlaup. og hinsvegar 500 m sund, 15 km hjól og 5 km hlaup. Þátttökugjald er kr.3.000 fyrir lengri þrautina og kr. 1.500 fyrir þá styttri, en inni í því er líka þátttökugjald fyrir hlaupið. 16 ára og yngri greiða 1.500 fyrir lengri og 1.000 fyrir styttri. Nefndin samanstendur af Guðmundi (sími 822 4706), Gísla (sími 862 4032) og Eddu (sími 860 3748). Við hvetjum alla til að vera með í þrautinni en biðjum þá sem ekki verða með að leggja okkur lið við brautarvörslu, tímatöku o.fl., laugardaginn 15. september. |
|
|
Karen Axelsdóttir með brons á HM |
|
|
|
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
miðvikudagur, 05 september 2007 |
|
Karen Axelsdóttir, sem er búsett í London, vann bronsverðlaun í sínum aldursflokki á Heimsmeistaramótinu í þríþraut sem haldið var í Hamborg, Þýskalandi um helgina. Karen hefur aðeins stundað þríþrautina í rúmt ár og því er þetta ótrúlega flottur árangur hjá henni. Karen hefur verið í sambandi við okkur í ÞRÍR þar sem hún hefði gjarnan viljað keppa fyrir hönd Íslands, í stað Bretlands, en sökum smæðar okkar félags þá hefur ekki (ennþá) verið grundvöllur fyrir því. En við höfðum samband við hana eftir frammistöðuna um helgina og hér fyrir neðan er þríþrautarsaga hennar... |
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 05 september 2007 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
miðvikudagur, 05 september 2007 |
|
Það verður mikið að gera á næstunni við að mæta í allar keppnir sem í boði eru...
Um næstu helgi verður efnt til landskeppni við Færeyinga í hjólreiðum. Hjólaðar verða þrjár dagleiðir, við Marel í Garðabæjarhrauni, í Hvalfirði og á Krísuvíkurleið. Keppt verður í tveim flokkum í báðum kynjum. Opnum flokki sem allir þátttakendur verða með í og flokki 18 ára og yngri. (nánari uppl. hér að neðan)
Í næstu viku bíða síðan þríþrautir, fimmtudaginn 13. á Suðurnesjum (nánar auglýst síðar) og laugardaginn 15. á Akureyri (sjá www.hlaup.is). |
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 05 september 2007 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 57 - 64 af 130 |