Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Fréttir
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Keppnisskráin 2008 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gísli Ásgeirsson   
sunnudagur, 17 febrúar 2008
21. febrúar, Þríþraut í Laugum. Sjá auglýsingu. Umsjón hefur Remi.

20. apríl. Tvíþraut í Heiðmörk. Umsjón hefur Kári Steinar Karlsson.

18. maí. Stuttþraut í Kópavogi. Umsjón hafa Ásgeir og Bibba.

1. júní. Hálfólympísk þraut á Seltjarnarnesi. Umsjón hefur Trausti.

8. júní. Bláalónsþrautin. Hefst í Hafnarfirði og endar við Bláalónið. Umsjón hefur Remi.

15. júní. Hálfur Járnkarl í Hafnarfirði. Umsjón hafa Steinn og Gísli.
Síðast uppfært ( sunnudagur, 17 febrúar 2008 )
 
Sundnámskeiðið í Laugum PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gísli Ásgeirsson   
sunnudagur, 17 febrúar 2008
Sá sem hér fer höndum um lyklaborð er nógu árrisull til að fara á morgunæfingar og heimsóknin í Laugar á föstudag fyrir rúmri viku, hófst á því að þurfa að leita að innganginum. Erindið var hávísindaleg úttekt á skriðsundsnámskeiði ÞRÍR en þar lærir fólk á besta aldri að synda hundasund fyrir lengra komna.

Stundvísi er dyggð og ritari var fyrstur niður í laugina og hafði hana fyrir sig fyrst um sinn. Síðan tíndist fólkið inn, beið drjúga stund eftir Niklas kennara sem forfallaðist af einhverjum ástæðum en Remi stökk í hlutverk kennarans og var sem hann hefði aldrei gert annað. Lærisveinkur hans og sveinar syntu hlýðin ferð eftir ferð eins og allir gerðu auðvitað til að nýta klukkutímann.

Laugin var stillt á rúma 50 metra og fyrir fólk sem er vant 25 metrum er hver ferð heil eilífð til að byrja með, einkum þegar skrokkurinn er stirður og bægslagangurinn ótæpilegur. En við syntum okkur til yndisauka og settumst svo í pottinn, héldum örstuttan stjórnarfund, enda allir í stjórn ÞRÍR á staðnum, nema Kári.

Niðurstöður: Morgunstund er meinhollt.
Síðast uppfært ( sunnudagur, 17 febrúar 2008 )
 
Inniþriþraut Feb 08 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Rémi Spilliaert   
fimmtudagur, 14 febrúar 2008

Inni-Þríþraut í Laugum

Fimmtudaginn 21. febrúar

Kl. 20:30 - Konur
Kl. 21:00 - Karlar
 

Sund:       400 m (í innilauginni - Laugardalslaug)

Hjól:         10 km (á spinninghjóli)

Hlaup:     2,5 km (á hlaupabretti, enginn halli)

  Skráning á staðnum frá kl. 19:30, eða í tölvupósti:  vallarbraut7@simnet.is

Þátttökugjald aðeins 1.000,- kr.

Aðgangur í Laugum er innifalinn - Mæting í anddyrinu Laugar.

Upplýsingar á  í síma: 840-8256 (Rémi) / 695-5979 (Helga).

 

 

 

 

 

 

Síðast uppfært ( mánudagur, 18 febrúar 2008 )
 
Skriðsundsnámskeið jan08 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Rémi Spilliaert   
þriðjudagur, 22 janúar 2008

Skriðsundsnámskeið

5 vikna skriðsundsnámskeið

Byrjar föstudaginn 1. feb. kl. 07:00

Kennari: Niklas Brix

Kennsla fer að mestu fram á ensku. Kennari bæði á bakkanum og ofan í lauginni eftir þörfum. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja bæta skriðsundstækni sína.

Kennsla fer fram í innilauginni í Laugardal.

Mánudaga kl. 20:30-21:30

Föstudaga kl 07:00-08:00

                       Verð: 6.000 kr                      

Allir velkomnir !!!

 

 

 

 

Síðast uppfært ( föstudagur, 25 janúar 2008 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 49 - 56 af 130
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?

Að utan
 
Top! Top!