Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Fréttir
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Úrslit í Nesþrautinni 2009 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
sunnudagur, 07 júní 2009

Hin árlega Seltjarnarnesþríþraut fór fram í 5. sinn sunnudaginn 7.júní sl.
Þátttaka var með besta móti, rúmlega 20manns á öllum aldri spreyttu sig á 750m sundi, 20km hjólreiðum og 5km hlaupi.
Aðstæður voru að vanda góðar á Nesinu, rigningarúði og því sem næst logn. 

Keppni var hörð bæði í karla- og kvennaflokki og barist hart um öll sæti.
Heildarúrslitin eru hér að neðan (veljið "Lesa meira").
Tengill á myndir sem Elvar Örn tók fyrir okkur.

Við þökkum frábærum sjálfboðaliðum sem gerðu okkur kleift að halda þessa keppni, sem og Seltjarnarnessundlaug.
Veitingar á staðnum voru í boði Vífilfells og Ásbjörns Ólafssonar.
Útdráttarverðlaun voru frá Markinu og Afreksvörum.


 

 

Síðast uppfært ( mánudagur, 08 júní 2009 )
Lesa meira...
 
Hálfólympísk þríþraut á Seltjarnarnesi 7. júni PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Corinna   
mánudagur, 25 maí 2009

Seltjarnarnesþríþraut - sunnudagur 7. júni 09 - kl. 9.00

Sundlaug Seltjarnarness við Suðurströnd 

Vegalengdir (1/2 Ólympisk) :

Sund 750m   -   Hjól  20 km  -  Hlaup  5 km

Smellið hér til að sjá Hjólaleiðina og Hlaupaleiðina

Flokkar: Karlar- og kvennaflokkur

Skráning:  Forskráning er á Hlaupadagbókinni (Hlaup.com)  Forskráningu lýkur á föstudaginn 5. júni.
Eftir það verður einungis hægt að skrá sig á keppnisdegi.  Skráningu lýkur 30 mín fyrir startið.

Keppnisgjald: kr. 1.500 í forskráningu  -  kr. 2.500 í skráningu á staðnum. Hægt að millifæra keppnisgjald fyrirfram á reikning ÞríR: 303-26-44120  Kt. 441207-1070. Sendið tilkynningu um greiðslu vg. "Nesþraut" á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  

Frítt í sund.

Skylda er að bera hjálm á hjólinu !! Engin undantekning.

Athugið að það er takmarkaður þátttakendafjöldi.
Best er að forskrá sig til að tryggja sér aðgang í þrautina.

Laugin er 25m og bara 4 sundbrautir.

Útdráttarverðlaun!!!

 

Meðlimir ÞríR sem ætla ekki að keppa eru hvattir til að aðstoða á keppnisdegi. Þurfum talningarmenn, brautarverðir, ritarar,...

Upplýsingar hjá Trausta 896 8775 og Rémi 840-8652

 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 27 maí 2009 )
 
Kópavogsþríþraut 2009 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
sunnudagur, 17 maí 2009

Kópavogsþríþrautin 2009 fór fram í blíðskaparveðri sunnudaginn 17.maí.

Metþátttaka varð að þessu sinni og keppnin öll var alveg frábær skemmtun.
Við vorum vel mönnuð af starfsfólki og það kom vel í ljós með góðri skipulagningu og flottri umgjörð.
Verðlaun voru í boði Marksins og Afreksvara, auk hefðbundinna verðlaunapeninga og rauðra rósa fyrir alla kvenkyns keppendur.
Allir fóru mettir og sáttir heim eftir góðar veitingar í boði Vífilfells og Ábjörns Ólafssonar (hefðbundið kók, powerade og prinspóló).

Í kvennaflokki sigraði María Ögn, og í öðru og þriðja sæti urðu Stefanie Gregersen og Kristín Laufey.  Í karlaflokki var baráttan hörð, en Torben Gregersen hafði sigur á undan Steini Jóhannssyni og Núma Snæ.

Heildarúrslitin eru hér að neðan og einnig á Hlaupadagbókinni (hlaup.com) og Hlaupasíðunni (hlaup.is).

Síðast uppfært ( mánudagur, 18 maí 2009 )
Lesa meira...
 
Kópavogsþríþraut 2009 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Corinna   
laugardagur, 02 maí 2009

Kópavogsþríþraut 2009

Sunnudaginn 17. maí. kl.10.00

Sundlaug Kópavogs (við Borgarholtsbraut)

Sund: 400m – Hjól: 10km – Hlaup 2,5km

 

Keppni hefst kl. 10:00 en keppendur verða að vera mættir og búnir að borga þátttökugjald fyrir kl. 9:30

 

Brautaskoðun á keppnisdaginn kl. 8.00.

Hjálmaskylda á hjóli !!!

 

Aldurstakmark 18 ára!

Forskráning á www.hlaup.com og á staðnum.

Keppnisgjald kr. 1.500

Leiðin sjá hér:   http://www.triceland.net/index.php?option=content&task=view&id=50

 

Athugið að það er takmarkaður þátttakendafjöldi.

Þáttakendur keppa á eigin ábyrgð.

Síðast uppfært ( laugardagur, 02 maí 2009 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 17 - 24 af 130
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?

Að utan
 
Top! Top!