|
Skrifað af Sigurður V. Smárason
|
|
þriðjudagur, 06 september 2005 |
Nú er undirritaður um það bil að leggja af stað í Caliman Half-Ironman eftir mikla þjálfun í sumar. Ég mun senda fréttir af undirbúningi og kepninni þegar ég verð kominn á staðinn. Þeir sem vilja lesa meira um þessa keppni geta farið hingað
http://www.japroductions.com/caliman/index.html
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 september 2005 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
þriðjudagur, 06 september 2005 |
|
Það var góður hópur að sunnan sem gerði sér ferð í þríþraut Vasa2000 hópsins á Ísafirði um sl. helgi. Keppnin sem fór fram laugardaginn 3.sept. byrjaði á 700m sundi í 16,6m sundlaug á Bolungarvík. Síðan voru hjólaðir 17km yfir á Ísafjörð og að því loknu var hlaupið 7km um Ísafjarðarbæ. Þau sem mættu héðan til að herja á heimamenn voru: Ásgeir Elíasson Bryndís Baldursdóttir Dagur Egonsson Jens Viktor Kristjánsson Trausti Valdimarsson Þórdís Hrönn Pálsdóttir Þorgeir Sigurðsson Og sérlegur bílstjóri/þjálfari og alhliða aðstoðarmaður var Pétur Frantzsson stórhlaupari. Leikar fóru þannig að Dagur vann þrautina, en Trausti var í öðru sæti, en heimamaður í 3. Heildarúrslit má finna hér: http://www.simnet.is/vasa2000/ Einnig er pistill um keppnina hér: http://www.bb.is/?PageID=141&NewsID=58909 Heimamenn kunna svo sannarlega að setja upp flotta keppni, allt var tipptopp og allir með bros á vör. Það er nokkuð ljóst að við sem fórum munum mæta aftur og vonandi með enn stærri hóp héðan að sunnan. |
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 september 2005 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 129 - 130 af 130 |