Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Fréttir
fimmtudagur, 09 febrúar 2012
 
 
Test niðurstöður, 1.-2. mars 2006 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
fimmtudagur, 02 mars 2006
Hérna eru niðurstöðurnar úr sundtestinu sem var tekið dagana 1.-2.mars 2006.
Til gamans má geta þess að til eru gamlar tölur fyrir a.m.k. Remi (1:47 per 100m) og Sigga (1:56 per 100m), síðan 2004.  Augljóslega hefur einhver árangur náðst, þó mismunandi sé :)

NafnVegalengd    Timi    Meðaltimi/100m
Remi80012:18.81:32.4
Jens80013:42.61:42.8
Dagur80013:43.61:43.0
Tómas80014:00.01:45.0
Sigurbjörn80014:07.01:45.9
Siggi80014:44.41:50.6
Gisli80014:45.71:50.7
Hartman80014:51.61:51.4
Helgi80015:31.01:56.4
Eva 40009:37.32:24.3
Sigurbjörg40009:55.42:28.9
Eva35008:52.22:32.1
Bertel40011:19.52:49.9
Steinn20006:06.33:03.2
Skarphéðinn20006:10.23:05.1
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 02 mars 2006 )
 
Úrslit - Inniþríþraut 23 feb. 2006 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
föstudagur, 24 febrúar 2006
Hér eru úrslitin úr Inniþríþrautinni sem haldin var í Laugum þann 23. febrúar 2006. 

Þáttaka var með besta móti og hörku keppni bæði í karla og kvenna flokki.  Ánægjulegt er að sjá hvað konurnar hafa tekið vel við sér í þáttöku í þessari þraut.

 WorldClass Laugum, Sundlaug Laugardals og síðast en ekki síst starfsfólki þrautarinnar er þakkað kærlega fyrir veittan stuðning og aðstoð við framkvæmdina.

Sýnt var frá keppninni í 10 fréttum ríkisútvarpsins í gær.  Þeir sem misstu af því geta farið hingað og kíkt á herlegheitin.

Ólafur Marteinsson var fyrstur í mark af körlunum á heildartímanum 34:34, og Elísabet Böðvarsdóttir var í fyrsta sæti í kvenna flokki á heildartímanum 45:05.

(veljið nánar til að sjá öll úrslitin).
Síðast uppfært ( föstudagur, 03 mars 2006 )
Lesa meira...
 
Haust tvíþraut 2005 - úrslit PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
sunnudagur, 13 nóvember 2005

Sigurvegarar í karlaflokki, Jens, Burkni og Trausti, gæða sér á súpu eftir keppni.

Tíu keppendur hófu keppni við erfiðar aðstæður.  Töluverð hálka var á vegum, en rigningin hafði ekki náð að bræða svellið um nóttina.  Burkni Helgason átti þessa keppni frá upphafi og kom fyrstur í mark á 1:12:17 sem er sami tími og hann var með í vor, upp á sekúndu!  Annar varð Trausti Valdimarsson á tímanum 1:19:35 og Jens Kristjánsson var þriðji með 1:22:03.  Kjarnakonan Eva Einarsdóttir var eini kvenkyns keppandinn að þessu sinni og kláraði hún brautina á 1:39:49.  Einn keppandi, Mikael Schou, varð fyrir því óláni að missa keðjuna af hjólinu og gat því ekki lokið keppninni.
Öllum keppendum og aðstandendum var svo boðið upp á dúndur súpu eftir volkið og var henni gerð góð skil.
Nokkrar myndir frá kepninni er að finna hér.

Veljið "Nánar" til að sjá heildarúrslitin.

Síðast uppfært ( laugardagur, 22 apríl 2006 )
Lesa meira...
 
Skráning haust tvíþraut 2005 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
þriðjudagur, 08 nóvember 2005
Hér er hægt að skrá sig til þáttöku í haust tvíþraut 2005:
Technical problem. Reservation category unavailable.
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 08 nóvember 2005 )
 
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 Næsta > Endir >>

Úrslit 121 - 128 af 130
Póstlistinn
ÞríR Tilkynningar


Receive HTML?