Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Keppnissögur
fimmtudagur, 09 febrúar 2012
 
 
Keppnissögur
EXTRA, EXTRA, READ ALL ABOUT IT! PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Hartmann Bragason   
mánudagur, 05 júní 2006
Það hefði mátt heyra saumanál detta þegar ég varpaði sprengju á blaðamannafundinum sem ég boðaði til að tilkynna þátttöku mína í hálf-ólympísku þríþrautina á Nesinu hér um daginn. Þegar viðstaddir höfðu jafnað sig eftir reiðarslagið sem kjaftshöggið olli tókst einum blaðamanninum að stynja upp, "já, en hvers vegna í ósköpunum tekurðu ekki þátt í heil-ólympísku greininni?"
Lesa meira...
 
Kópavogsþríþraut 2006 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Hartmann Bragason   
laugardagur, 20 maí 2006
Mig langar að segja frá reynslu minni af Kópavogsþríþrautinni hér um daginn.

Ég hafði fyrirfram nokkuð blendnar tilfinningar til hjólabrautarinnar vegna brattrar brekku og snarprar beygju sem þurfti að taka og annarra hraðahindrana. Aðra mótbáru hafði ég heyrt að hér væri um sérhannaðan heimavöll Ásgeirs að ræða. Höfðu því gárungarnir að orði að keppnin færi fram í garðinum hans Ásgeirs og Bibbu og sundkeppnin í baðkari þeirra hjóna. Hjólabrautin reyndist þegar til kom hin besta, með hæfilegum brekkum og hraðahindrunum á köflum. Helst mátti setja út á lélegar bremsur á gömlu hjólatíkinni minni sem ég ætlaði á. Þorgeir benti mér hins vegar á að Hjólreiðafélag Reykjavíkur hefur hafið leigu á götuhjólum sem reyndist mér vel. Það var drengilega gert af mínum helsta mótherja sem ég hef eldað grátt silfur við fram til þessa. Ég tek því til baka ummæli mín um að fyrsti stafurinn í nafni Þorgeirs væri prentvilla, þ.e. ætti að vera G í stað Þ.

Síðast uppfært ( mánudagur, 22 maí 2006 )
Lesa meira...
 
Nýr flokkur PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
sunnudagur, 14 maí 2006
Glöggir lesendur hafa eflaust séð nýjan flokk efnis hér á síðunum, sem heitir "Keppnissögur".  Meiningin er að sem flestir geti skrifað og birt það sem á ensku er kallað "race report" eða keppnissögur hér ef þeim lystir.  Jens formaður reið á vaðið og skellti einni frásögn af nýafstaðinni Kópavogsþríþraut.  Endilega kíkið á hana og ekki vera feimin við að senda inn aðrar greinar.
Síðast uppfært ( sunnudagur, 14 maí 2006 )
 
Kópavogsþríþraut 2006 - frá formaninum PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson   
sunnudagur, 14 maí 2006
Það leit út fyrir flott veður fyrir þríþraut þegar ég fór á fætur kl.7, en ég vissi að það gæti verið dálítið kalt.

Eftir að hafa hjólað í Kópavoginn til Ásgeirs og Bibbu og hjálpað aðeins til við að ferja það sem til þurfti yfir í Sundlaug, ákvað ég að rúlla hjólahringinn einu sinni.

Síðast uppfært ( sunnudagur, 14 maí 2006 )
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Úrslit 9 - 12 af 12
Að utan
 
Top! Top!