Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
Heim arrow Keppnissögur
fimmtudagur, 11 mars 2010
 
 
Keppnissögur
Leikur af tölum frá Þríþrautinni á Seltjarnarnesi - Eftir Hartmann Bragason PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Rémi Spilliaert   
mánudagur, 02 júní 2008

Leikur að tölum frá Hálf-ólympísku þríþrautinni á Nesinu, 2008

 

-- Áhrif skiptitímans og aldurs á heildarúrslit

  Í kópavogsþríþrautinn árið 2006 komst ég svo að orði á þessari vefsíðu: Áður... vil ég geta þess að röðin í úrslitunum þar sem ég var nokkuð aftan við miðju, gaf ekki alveg rétta mynd af frammistöðu minni nema menn vilji telja það til afreksverka að vera fljótur að snara sér fram úr rúminu á morgnana og hysja upp um sig brækurnar.  Ég sem sagt tapaði amk fjórum mínútum á því að hafa ekki æft mig sérstaklega í þessari morgunleikfimi svo það er ekki neinum öðrum að kenna en sjálfum mér þó það hafi kostað mig sjálfsagt ein þrjú til fjögur sæti á topp tíu listanum. Ég hét því að bæta mig í rúmleikfiminni en eins og oft vill verða endurtekur sagan sig.  Ég ákvað því að kanna hvort ég væri sá eini sem ætti við þetta vandamál að stríða.  Ég umreiknaði þess vegna öll úrslitin úr hálf-ólympísku þríþrautinni á Nesinu, sl. Sunnudag með því að draga skiptitímann frá öllum heildartímum:  Heildartíminn sem ég gef mér er þess vegna samanlagður tími úr sundinu, hjólreiðunum og hlaupinu og ekkert þar fyrir utan.  Á töflunni hér að neðan birtist niðurstaðan af þeim útreikningi:  Talan í fremsta dálk stendur fyrir röð manna eftir umbreytingarnar og talan innan sviga er raunveruleg röð manna á listanum með skiptitíma. 
Úrslit karla að frádregnum skiptitíma***        
Sæti Nafn f.ár sund nett hjól net hlaup Heildartími Aldursáhrif
1 (1) Torben 74 0:10:42 0:33:54 0:19:24 1:04:00 -1
2 (3) Hákon 74 0:13:48 0:32:13 0:19:46 1:06:12 -1
3 (2) Steinn 68 0:10:10 0:38:17 0:18:09 1:06:38 -3
4 (4) Bruce 76 0:11:14 0:36:18 0:19:26 1:06:58 -1
5 (5) Jón 63 0:10:09 0:43:56 0:21:20 1:15:25 -4
6 (6) Sveinb 80 0:14:46 0:40:21 0:21:05 1:16:12 0
7 (7) Birgir 82 0:12:09 0:41:19 0:23:20 1:16:48 0
8 (10) Hartmann 54 0:13:38 0:42:00 0:22:50 1:18:28 -5
9 (9) Bjarki Þorleifs 77 0:12:35 0:43:05 0:23:33 1:19:13 -1
10 (8) Bjarki Þórarins 83 0:14:43 0:42:03 0:23:03 1:19:49 0
11 (11) Ómar 80 0:14:48 0:44:45 0:23:30 1:22:12 0
12 (12) Stefán 80 0:16:27 0:49:35 0:24:10 1:30:12 0
 Tórben verður ekki haggað úr 1. Sæti eins og við komumst betur að síðar.  Hákon færist úr 3. Sæti í 2. Og Steinn fellur úr 2. Sæti í 3.   Sætaröð 4. 5. 6. Og 7. Manns er óbreytt.   Hartmann færist úr 10. Sæti í 8. Sæti.   8. Og 9. Sæti hafa einnig stólaskipti.  11. Og 12. Sæti eru óbreytt.               Ég verð að viðurkenna að það fer betur um mig í 8. Sæti eftir slíkar hræringar þó ég geti fallist á að það geti verið skiptar skoðanir á þessum umhleypingum á meðal sessunauta minna á hvorn veginn sem er.               Ég lét ekki hér við sitja og hugsaði með mér hvort að liðin væri sú tíð að ungdóminum var tamt að rísa úr sæti fyrir hinum eldri og ráðsettu.  Ég tók mig því til og samdi þumalputtareglur um hvaða sess eða virðingarröð hver og einn keppandi ætti að hljóta með tilliti til aldurs og frammi-stöðu í hálf-ólympísku keppninni.  Með öðrum orðum ég áætlaði aldurstengd áhrif á frammistöðu allra þáttakenda, þ.e. ég flokkaði hvaða sæti í vinningsröðinni hver og einn hefði hlotið eftir að aldurstengd áhrif höfðu verið dregin frá.  Ég bætti svo niðurstöðunum við heildartímann að frádregnum skiptitímanum. Ég útbjó aldursstuðul sem ég tel að geti verið lægsti samnefnari eða stuðull sem allir aldursflokkar ættu að geta fallist á.  Þannig áætla ég að ungir menn á aldrinum 19-29, sem fæddir eru á árunum ‘79-‘89, séu að öllu jöfnu á hápunkti íþróttaferils síns hvað líkamlega getu snertir.  Það byggi ég á að yfirgnæfandi fjöldi manna í afreksíþróttum eru á þessum aldri.  Frá þeim aldri áætla ég að á fimm ára fresti dragi um eina mínútu frá heildarárangri manna í hálf-ólympískri þríþraut.  Þannig lítur aldurstaflan út samkvæmt þessum útreikningum: 19-29 ára = 030-35 ára = 135-40 ára = 240-45 ára = 345-50 ára = 450-55 ára = 5Og svo framvegis Á aldurstöflunni hér að ofan hef ég bætt við einum dálki þar sem í kemur aldursstuðullinn við hvern aldursflokk samkvæmt fæðingarári hvers og eins sem er uppgefið.  Á næstu töflu hér að neðan kemur svo heildartíminn út eftir að ég hef dregið hin aldurstengdu áhrif frá hverjum aldursflokki.  Ég er með öðrum orðum að velta fyrir mér hver úrslitin hefðu orðið ef allir keppendur sætu við sama borð hvað aldur snertir, í þessu tilviki miðað við hámarksgetu 19-29 ára manna:  
Úrslit karla að frádregnum skiptitíma og aldurstengdum áhrifum      
Sæti Nafn f.ár sund nett hjól net hlaup Heildartími Aldursáhrif Aldurstími
1/1/01 Torben 74 0:10:42 0:33:54 0:19:24 1:04:00 -1 1:03:00
2/3/02 Steinn 68 0:10:10 0:38:17 0:18:09 1:06:38 -3 1:03:38
3/2/03 Hákon 74 0:13:48 0:32:13 0:19:46 1:06:12 -1 1:05:12
4/4/04 Bruce 76 0:11:14 0:36:18 0:19:26 1:06:58 -1 1:05:58
5/5/05 Jón Hugi 63 0:10:09 0:43:56 0:21:20 1:15:25 -4 1:11:58
6/8/10 Hartmann 54 0:13:38 0:42:00 0:22:50 1:18:28 -5 1:13:28
7/6/06 Sveinbjör 80 0:14:46 0:40:21 0:21:05 1:16:12 0 1:16:12
8/7/07 Birgir 82 0:12:09 0:41:19 0:23:20 1:16:48 0 1:16:48
9/9/09 Bjarki Þorleifs 77 0:12:35 0:43:05 0:23:33 1:19:13 -1 1:18:13
10/10/08 Bjarki Þórarins 83 0:14:43 0:42:03 0:23:03 1:19:49 0 1:19:48
11/11/11 Ómar 80 0:14:48 0:44:45 0:23:30 1:22:12 0 1:22:12
12/12/12 Stefán 80 0:16:27 0:49:35 0:24:10 1:30:12 0 1:30:12
  

Eins og vænta mátti hafa hér orðið talverðar tilfæringar.  Torben bætir tíma sinn um eina mínútu og situr sem fastast í 1. Sæti (hann er líklega orðinn leiður á 2. sætinu).  Steinn færist aftur upp í 2. Sæti og er nú aðeins 38 sek á eftir Torben þar sem Steinn er fæddur ‘68.  Hákon er aftur kominn á sinn rétta stall frá byrjun.  Bruce er áfram í 4. Sæti og einnig Jón Hugi í 5ta sæti.  Jón hefur saxað þrjár mínútur á tíma Bruce án þess að komast með tærnar þar sem hann hefur hælana.  Hartmann er hástökkvarinn í þessum loftfimleikum því að eftir að hafa færst úr 10-unda sæti í það 8-unda með afnámi skiptitímans, færist hann núna upp í 6-ta sæti.  Munar þar mestu að hann fær fimm mínútur í frádrátt í sína forgjöf enda fæddur ’54.  Hinir þátttakendurnir með lakari heildartíma færast neðar sem því nemur.  Sveinbjörn og Birgir verða því í 7. Og 8. Sæti en voru áður í 6. Og 7.  Bjarki Þorleifsson er áfram í 9. Sæti.  Bjarki Þórleifsson hefur færst úr 8. Sæti í það 10 en Ómar og Stefán eru áfram í 11. Til 12 sæti.

 

Umræður

 Ýmislegt er við þessar vangaveltur að athuga eins og gefur að skilja.  Í fyrsta lagi sitja allir við sama borð hvað áhrærir skiptitímann.  Það er m.ö.o. mitt vandamál ef ég er lengi að skipta um föt.  Ef afnema ætti skiptitíman fá þeir sem taka sér lengri skiptitíma meiri hvíld sem gefur þeim visst forskot.  Í öðru lagi má ætla að þeir sem nota smelluskó hafi eitthvert forskot í hjólreiðum á þá sem nota enga slíka skó.  Með því að afnema skiptitímann er verið að koma í veg fyrir að hægt sé að rétta hlut hinna sem nota sömu skó við hjólreiðarnar og við hlaupin.  Þeir þurfa eðlilega styttri skiptitíma en hinir sem þurfa að skipta um skó.                 Á móti þessum rökum má spyrja hvers vegna er verið að bæta tíma við keppnisúrslitin sem á ekkert skylt við keppnisgreinarnar?  Er þá ekki verið að mæla og meta eitthvað annað en það sem til stendur?  Hvað er þá hægt að grípa til ráðs þannig að öllu jafnrétti sé fullnægt án þess að blanda óskyldum hlutum eins og skiptitímanum inn í frammistöðu manna í þríþraut?  Ég tel að úr þessu mætti bæta með því að gera að jafnaði ráð fyrir tveimur mínútum til þess að skipta úr einni grein yfir í aðra.  Klukkan er þá stöðvuð nákvæmlega á þeim tíma sem keppandi lýkur við eina grein og er sett aftur af stað eftir tvær mínútur.  Þá getur keppandinn haldið áfram  með næstu keppnisgrein.  Þurfi keppandi lengri tíma en það til skiptanna, sem er harla ólíklegt, þá mætti bæta refsitíma við hann sem umfram tíma hans nemur.  Sá hængur er á þessari lausn að hún er ekki í samræmi við alþjóðlegar reglur þríþrautarsambandsins ef menn vilja taka sig hátíðlega.  Auk þess er þrátt fyrir allt talsverð spenna fólginn í að vera sem fljótastur í því að “hysja upp um sig brækurnar”.  Niðurstaða mín er að það væri gott að vera laus við bannsettan skiptitímann en það er hægt að búa við hann.               Varðandi aldursáhrifin þá er það óumdeilanlegt lögmál að líkaminn hrörnar með aldrinum.  Hins vegar er aldur afstæður í ýmsum keppnisgreinum, þar sem aukin keppnisreynsla, seigla og úthald bætist við með aldrinum upp að vissu marki.  Þetta á sérstaklega við í þolgreinum eins og langhlaupum og þríþraut.   Það sýnir sig líka að fimm fyrstu keppendurnir eru allir komnir yfir þrítugt.  Líklega þyrfti ég að endurskoða aldurslistann og gefa yngri mönnunum –1 mínútu í aldurstengda forgjöf sem getur flækt málin.  Gróf meðaltöl gefa auk þess helst rétta mynd af hópnum en hver einstaklingur getur vikið frá meðaltalinu sem jafnast út yfir heildina.               Ég vil árétta í lokin að menn skuli taka hæfilega alvarlega þær reikningskúnstir sem ég hef viðhaft en vera jafnframt vakandi yfir takmörkunum sem reglurnar setja okkur. ***Ég biðst velvirðingar á því að ég hef ekki gefið mér tíma tima til þess að gera sams konar könnun í kvennaflokkinum sem vissulega myndi auka vægi hennar.   
Síðast uppfært ( mánudagur, 02 júní 2008 )
 
Keppnissögu Corinnu Hoffman um Kópavogsþríþrautina PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Rémi Spilliaert   
miðvikudagur, 21 maí 2008

Corinna Hoffman sendi okkur þessa keppnissögu um Kópavogsþríþrautina.

Rosalega var þetta gaman. Fullt, fullt, fullt af fólki mætt, 30 eða 40 keppendur! Þá er miklu meiri gaman og fleiri til að keppa við. Það var þröngt í sundi eða 5-6 manns á braut. En það lagaðist eftir 50m þegar allir voru á sinum hraða. Gékk nokkuð vel að sunda, skriðsundi allar 400m. Er bara spennt eftir tímann, en ég held ég hef nú bætt mér siðan í inniþraut í febrúar. Skiptitíminn gekk nokkuð vel fannst mér. Sleppti að þessu sinnu að reyna að komast í þröng hlaupabuxur á blautan likaman og fór í staðinn í göngubuxur, sem eru mjög fínt til að hjóla (þröngt niðri) og hlaupa. Var líka að hugsa áður að það gæti verið kalt og þá eru þessi buxur betur. Fann samt ekki fyrir kulda allan timan, þó að blautur sundbolur var undir öllu. Svo var hjólað 3 hringir með nokkrum góðum brekkum og tókst mér vel að halda hraðan. Er ég viss um að það er dekkjaskipti að þakka sem Elskan gerði á siðustu stund fyrir mig í gærkvöldi. Slettari prófil, minni viðnám, meiri hraði, auðveldar að hjóla. Mér fannst heldur ekki eins erfitt að hjóla (prufuhjólaði hringinn í gær á gömlum dekkjum). Bið spennt efir tímanum en held ég náði undir 30mín sem var allgjört draumahugur áður. En nú þurfti að hlaupa 2,5km! Oh hvað það var þúngt. Aftan á lærum og kálfum fann ég fyrir og tók það meira en hálfan hring að jafna sér. Það varð eiginlega bara auðveldara þegar komið var á topp Borgarbrautina og eftir að hlaupa niður í mót. Átti stuttan endasprett inni. Það var allveg æðislegt. Veðrið topp! Logn, ekki kalt og ekki heit. Varð 6. af 10 konum með timan 51:47 ef ég náði það rétt. Nú er ég orðin heit fyrir að kaupa mér racer. Þá verður hjólatíminn enn betur og enn meiri gaman   Heitur pottur eftirá með miklum pælingum í keppni og svo hjólað heim.
Svo er það næsta þraut á Seltjarnarnes 1.júni, þá tvöfaldi lengd   Ætla amk. að profa ef veðrið verður sæmilega.

Tekið úr blogginu Corinnu: http://corinna.blogcentral.is/

 
Spjall um úrslitin í Þríþrautarkeppninni í Kópavogi vorið 2008 PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Rémi Spilliaert   
mánudagur, 19 maí 2008

Spjall um úrslitin í Þríþrautarkeppninni í Kópavogi vorið 2008

Eftir Hartmann Bragason

Þríþrautarkeppnin í Kópavogi sl. sunnudag tókst með ágætum og hafa sjaldan fleiri þátttakendur mætt til leiks.   Það er sérlega ánægjulegt að konurnar er farnar að taka aftur við sér.  Nýliðarnir settu sterkan svip á keppnina og velgdu jafnvel sumir þeirra gömlum reynsluboltum eins og undirrituðum undir uggum.  Svo var að heyra á þeim að þeir biðu í ofvæni eftir næstu keppni til þess að láta kné fylgja kviði.  Verði þeim að góðu því við erum rétt að byrja og tónninn sleginn fyrir stórátökin sem eru framundan í sumar.

Torben Gregersen varð að þessu sinni þríþrautarkóngur.  Ekki langt á eftir honum kom Sten Johannsen sem einnig var í banastuði en þeir félagar eru mjög jafnir að getu og hafa áður “borist á banaspjótum”.  Öruggt má því heita að Torben fær ekki að hvíla lengi á lárviðarlaufi sínu vilji hann segja endanlega skilið við annað sætið.  Þeir kumpánarr eru í sérflokki og virðast fáir í karlaflokki líklegir á næstunni að geta velt þeim úr sessi.

                Að sama skapi varð Helga Árnadóttir þríþrautardrottning í kvennaflokki sem hún sigraði með miklum yfirburðum.  Ekki er nóg með að hún beri höfuð og herðar yfir stallsystur sínar heldur hjó tími hennar langt inn í raðir karlanna því tími hennar var ekki langt frá tíma karlanna í 3.-5. Sæti.  Helga hefur verið mjög dugleg við æfingarnar í vetur enda hefur hún uppskerið sem hún hefur sáð.  Gárungarnir segja reyndar að það hafi gefið henni byr undir báða vængi er hún krækti í einn besta hlaupara okkar Stefán Viðar Sigtryggsson sem átti sitt debut (fyrstu keppni) í þríþrautarkeppni.  Þó hann yrði eins og fleiri góðir drengir að lúta í lægra hald fyrir vinkonu sinni átti hann góða innkomu og öruggt er að ekki er langt í að Stefán fari að skipa sér í fremstu raðir þríþrautarmanna, sérstaklega ef Stebbi nær tökum á sundinu (þe. Sundtökunum) og kaupir sér nýtt hjól.

                Annar nýliði (?) í þríþraut sem vakti óskipta athygli var skagamaðurinn Jón Hugi Harðarson sem náði þriðja sæti skammt á undan félaga sínum Trausta Valdimarssyni.  Hann kvartaði þó undan brekkunum á Kársnesinu enda ekki vanur þeim á Akranesi.

                Að mér vitandi var tímatakan hnökralaus að þessu sinni en smá ruglingur kom upp hjá nokkrum keppendum hvernig loka bæri hjólakeppninni.  Það gengur betur næst og fleiri glæsileg þríþrautarmót á döfinni.

Kv. Hartmann

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 21 maí 2008 )
 
Frá Hartmanni: Um inniþríþrautina í Laugum. PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Hartmann Bragason   
mánudagur, 25 febrúar 2008
ÚRSLITIN Í INNI-ÞRÍÞRAUTINNI:



Í fyrra komu þríþrautarkonurnar, sáu og sigruðu en að þessu sinni var

metþátttaka hjá karlpeningnum (sjá úrslit: http://www.triceland.net).

Bryndís Ernstdóttir vann kvennaflokkinn með miklum yfirburðum enda er hún,

ásamt öðrum systkinum sínum, mikil hlaupakona og “gömul í sund-hettunni”.



Athygli vekur að þrjár kvennanna voru þýsk-íslenskar en í karlaflokkinum

kepptu tveir Danir, auk Englendings og Spánverja (?). Yfirumsjón með

keppninni hafði og “Frakkinn” Remi sem er formaður Þrír-R. Þetta sýnir vel

hina breyttu samsetningu Íslendinga og þær vinsældir sem þríþrautin nýtur

erlendis.



Annað sem vekur athygli er hversu jafn og góður karlaflokkurinn var. Sem

dæmi var undirritaður í þriðja sæti í fyrra en þrátt fyrir að hann hafði

bætt sig um eina mínútu í ár hafnaði hann nú í miðjum flokkinum. Engu að

síður þykir frammistaða hans og aldursforsetans, Sigurbjörns Einarssonar

sýna og sanna að “gömul vín batna með aldrinum”.



Sundþjálfarinn Niklas Brix varð óvænt í þriðja sæti en hann þjálfar m.a.

þrír-R. Steinn Jóhannsson vann keppnina naumlega en hin gamalreynda

fjölíþróttakempa Torben Gregersen var aðeins nokkrum sekúndum á eftir

(örlaganorn lagði eitt sinn á Torben að vera (nær) alltaf í 2. Sæti).

Steinn hefur einkum látið af sér kveða í maraþonhlaupum. Þessir kappar,

ásamt hinum fræknu maraþonhlaupurum Gísla Ásgeirssyni og Trausta

Valdimarssyni, stefna að því ásamt öðrum að keppa í járnkarlinum í Köln í

sumar og víðar. Það má ekki minna vera en að keppt verður aftur í

hálfum-járnkarli á Íslandi í sumar sem verður ómetanlegur undirbúningur

fyrir þessa erfiðu keppni.



Þess má geta að Gísli skrifaði skemmtilega grein í vefsíðu Þrír-R um

Inni-þríþrautina í ár. Gísli vitnaði m.a. í Grettis sögu Ásmundarsonar,

þar sem hann kom með frumlega kenningu um að Grettir hefði verið fyrstur

manna til þess að keppa í þríþraut, amk hér á landi. Gísli hyggst

endurreisa Grettis-þríþrautina aftur til vegs og virðingar en hún þykir

vera með frumlegu sniði. Keppnin hefst væntanlega 1. Apríl í ár með

Drangeyjarsundi því fylgt verður dyggilega í spor Grettis.



Af gefnu tilefni langar mig að minnast á að mikið álag er á tímatökumönnum

í þríþrautarkeppnum. Það geta því komið fyrir mistök í sambandi við

tímatökuna. Ef einhverjir keppenda renna í grun um að ekki sé allt með

felldu með tíma þeirra er nærtækast að senda Remi skeyti þ.a.l. en hann er

í þríþrautarliðinu.



Hartmann Bragason 25.2.2008 06:
Síðast uppfært ( mánudagur, 25 febrúar 2008 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 8 af 12
 
Top! Top!