Þríþrautarfélag Reykjavíkur Advertisement
mánudagur, 06 febrúar 2012
 
 
Þríþraut í maí! PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
þriðjudagur, 19 apríl 2005
Þríþrautarfélag Reykjavíkur – ÞRÍR,
Sunddeild KR og Laugaskokk
kynna
Vor - Þríþraut
sund-hjólreiðar-hlaup
Image
Sundlaug Seltjarnarness

22. maí 2005
Almennar Upplýsingar
Leiðir
ATH! Skráningu er nú lokið.
Verðlaunaafhending mun hefjast kl 12:30 á sunnudaginn,
þar með talið útdráttarverðlaun.
Ólympísk vegalengd:1500m/40km/10km
Einstaklingskeppni:
1 þátttakandi/3 greinar
ræst kl. 9:00
 (0 skráðir)
Keppendur
Sprint vegalengd:  400m/10km/3.5km
Einstaklingskeppni:
1 þátttakandi/3 greinar
ræst kl. 10:30
 (0 skráðir)
Keppendur

Sveitakeppni:
3 þátttakendur/1 grein á mann
ræst kl. 9:45
 (0 lið skráð)
Keppendur

Athugið! Betra er að vera skráður inn sem notandi á vefnum áður en þið skráðið ykkur til þáttöku í þríþrautinni.  Þeir sem það gera hafa aðgang að þáttökuskráningunni sinni og geta breytt/bætt (og hætt við) ef við á.
Síðast uppfært ( mánudagur, 05 júní 2006 )
Lesa meira...
 
Vortvíþraut 2005 - Úrslit PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
mánudagur, 11 apríl 2005
Hér er Burkni Helgason að koma fyrstur í mark á 1:12:17.  Dagur Egonsson var annar á 1:14:24 or Sigurður Hanssen þriðji á 1:16:40.
Image
Fleiri myndir hjá Alberti og hér.

Veljið "Nánar..." hér að neðan til að sjá heildar úrslit.
Síðast uppfært ( mánudagur, 05 júní 2006 )
Lesa meira...
 
Nú má góða veðrið koma aftur! PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
sunnudagur, 10 apríl 2005
Image
Eftir fremur kalda viku mættu rúmlega 30 manns í vor tvíþrautina sem haldin var í dag.  Eins og sjá má hér til vinstri þá var aðeins minni snjór, en þeim mun meiri drulla, öllum til mikillar ánægju.  Veður útlit var fremur gott framan af morgni, en svo kom smá rigning til að skola í burtu restinni af snjónum rétt áður en tvíþrautin hófst.  Þetta var sum sé nokkuð hráslagaleg byrjun, en flestir keppendanna hlupu í sig hita á fyrsta hlaupaleggnum.  Þeir sem ekki voru með bretti á hjólunum fengu svo ærlegt drulluandlitsbað á hjólaleiðinni.  Ekki var rukkað sérstaklega fyrir það, en stjórn ÞríR er að hugsa um að reyna að fá fleiri konur til að taka þátt með því að auglýsa þetta rækilega upp fyrir haustið.
Við viljum þakka öllum keppendunum fyrir góða keppni og eins viljum við þakka öllum þeim sem hjálpuðu til við framkvæmd keppninar kærlega fyrir hjálpina.
Hægt er að sjá myndir fyrir og eftir keppni og svo tók Albert fullt af myndum líka.
Úrslit verða sett á netið í síðastalagi á morgun.
Hér að neðan má svo sjá tvo yngstu keppendurna, sem stóðu sig frábærlega vel.


Síðast uppfært ( mánudagur, 05 júní 2006 )
Lesa meira...
 
Vortvíþraut frestað PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður V. Smárason   
sunnudagur, 03 apríl 2005
Image
Vor?
Var ekki komið vor?
Tvíþrautarkeppninni var frestað um viku vegna færðar.
Hægt er að sjá fleiri myndir af aðstæðum og fólkinu sem mætti.


Þeir sem vilja afskrá sig hafi samband við skráningu, þeir sem vilja taka þátt en hafa ekki skráð sig geta tilkynnt þáttöku hér á netinu eins og áður.
Síðast uppfært ( mánudagur, 05 júní 2006 )
 
Að utan
 
Top! Top!