|
Tvíþraut í Heiðmörk á sunnudaginn |
|
Skrifað af Jens Viktor Kristjánsson
|
|
miðvikudagur, 15 apríl 2009 |
|
Heiðmerkurtvíþraut verður haldin nk. sunnudag 19.apríl, kl.10:00.
Keppnin verður með hefðbundnu sniði og á sömu leið og undanfarin ár, hlaupahringurinn er 2km og hjólahringurinn 7,5km.
Í boði er bæði styttri og lengri vegalengd og keppt er í karla- og kvennaflokki í hvorri vegalengd.
Mæting er við bílastæðið við Furulund og þar er start-, skipti- og marksvæði.
Styttri
þraut
- Hlaup: 2
km (1 hringur rauð leið)
- Hjól: 7,5
km (1 hringur blá leið)
- Hlaup: 2
km (1 hringur rauð leið)
Lengri
þraut
- Hlaup: 4
km (2 hringir rauð leið)
- Hjól: 15
km (2 hringir blá leið)
- Hlaup: 4
km (2 hringir rauð leið)
|